Stefnan að stækka hænsnabúið um helming
Góðar líkur eru á að eggjaframleiðsla í Grænahrauni hefjist aftur um miðjan maí og verði að fullu komin í gang síðast í maí, eftir brunann í hænsnabúinu 14.des.sl. Við erum með unga í gömlum búrum og einnig lausa unga annarsstaðar sem fara að verpa um miðjan apríl svo að þá ættum við að geta farið að selja egg sagði Valþór Ingólfsson bóndi. Núna stendur á að fá búrin afgreidd frá framleiðandanum vegna mikillar eftirspurnar til Kína út af fuglaflensunni og fleiru því er erfitt að komast inn í afgreiðsluna sem er í Þýskalandi. Nú erum við búnir að fá staðfestingu á okkar pöntum og þjóðverjarnir eru vanir að standa við sitt. Við byrjum með 3600 varphænur núna og bætum svo 1500 ungum við þegar nýju búrin koma og svo er stefnan að stækka búið um helming sagði Valþór. Við vorum að byrja á stækkuninni og vorum að fá unga þegar þessi ósköp dundu yfir og gátum komið þeim fyrir í Sauðanesi.
Valþór segir að ýmsar ráðstafanir þurfi að gera í hænsnabúinu vegna hættu á fuglaflensu. Okkur er ráðlagt að loka húsinu algjörlega fyrir öllu utanaðkomandi nema okkur eigendunum sjálfum og fara eftir sérstöku kerfi. Sérfræðingar okkar segja að þegar einhver fuglaflensa greinist hér á landi og að þá fari öll starfsemin í sérstakan feril og þá verður hver að passa sitt hænsnabú, það er það sem allt veltur á.
Það hefur verið mikil vinna hjá þeim Valþóri og Valdimar Grænahraunsbændum og fjölskyldum að koma hænsnabúinu á stað aftur því nánast þurfti að byggja húsið upp því allir innviðir og allt sem inni var eyðilagðist.





Skrifa athugasemd