Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði
Í kvöld föstudagskvöld kl.20.00 heldur Grunnskólinn í Hofgarði árshátíð sína. Þó skólinn sé ekki fjölmennur þá er dagskráin fjölbreytt og efni hennar sem allir nemendur flytja er leikið, lesið og sungið og á eftir er veislukaffi fyrir alla og ekki neinn vafi á að þar svigna borðin undan gómsætum hnallþórum og öðru góðgæti. Aðgangseyrir er kr.1000 og er kaffið innifalið í því, einnig er skólablaðið til sölu á kr.500. Ágóðinn er lagður inn í ferðasjóðinn. Sveitungarnir eru vanir að fjölmenna á þessar hátíðir barnanna og ekki hamlar veður ferðum því það er eins og best verður á kosið logn, blíða og vorlegt.
Í vetur eru nemendur Grunnskólans í Hofgarði 9 í 1.-6. bekk en enginn nemandi er í 7. bekk núna og skólastjóri er Pálína Þorsteinsdóttir.





Skrifa athugasemd