Fólk á Höfn taldi sig hafa heyrt í lóunni
Tvö síðustu kvöld taldi fólk á Höfn sig hafa heyrt í lóunni en sökum myrkurs sást enginn fugl. Venjulega kemur lóan ekki til landsins fyrr en í apríl svo haft var samband við Björn Arnarson fuglaáhugamann sem fylgist náið með komu farfuglanna og hann spurður hvort lóan væri komin. Björn taldi það ekki vera og sagði líklegast að þarna hefðu ,,starraskrattar" eins og hann orðaði það, verið á ferðinni. Starrinn fer að herma eftir lóunni nokkru áður en hún kemur og t.d. er algengt að fólk í miðborg Reykjavíkur telur sig heyra í lóunni en reynist svo vera starri. Björn segir að starrinn hermi eftir ótrúlega mörgum fuglategundum og nái þeim vel.
Farfuglarnir eru að byrja að sjást t.d eru komnir hópar grágæsa og nokkrir gráþrestir, brandendur og tjaldar hafa sést.





Skrifa athugasemd