Mars
Holdanaut
Holdanaut
Holdanaut í Flatey (úr myndasafni)

17.03.2006 Mars

Verða með fræðsluerindi fyrir bændur á fimmtudögum

Búnaðarsamband Suðurlands hefur tekið upp þá nýbreytni að vera með fræðsluerindi fyrir bændur og búalið á hverjum fimmtudegi næstu vikurnar. Að sögn Grétars Þorkelssonar starfsmann búnaðarsambandsins í Skaftafellssýslum fer þessi fimmtudagsfræðsla fram ýmist í fundarsal BSSL á Selfossi eða hjá Fræðsluneti Suðurlands og verður hún send út um fjarfundarbúnað í Framhaldsskólanum á Höfn einnig á Klaustri og í Vík.Hornfirskir bændur geta því að fullu nýtt sér þessa fræðslu hér heima. Grétar sagði fundinn sl.fimmtudag hafa verið mjög áhugaverðan og fróðlegan en þar var fjallað um prótíngjafa s.s. ertur, flækjur, og fóðurlúpínu og möguleika á ræktun þeirra hér á landi.

Fimmtudaginn 23.mars verður námskeið þar sem fjallað verður um hvort sé hagstæðara að kaupa eða leigja tæki sem nota þarf við landbúnaðinn. Þátttökugjald er kr 2.000 á mann fyrir hvern fund og fer skráning fram í síma 480-1800 eða á netfangi bssl@bssl.is

Grétar er bjartsýnn á að þessi fimmtudagsfræðsla muni koma bændum vel og menn nýti sér fjarfundarbúnaðinn þar sem langt er milli staða innan sambandsins og of langt er fyrir bændur í Hornafirði að sækja vikuleg námskeið á Selfossi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica