Fasteignasala mun líflegri en á sama tíma í fyrra
Fasteignasala hér á Hornafirði hefur verið mun líflegri það sem af er árinu en var á sama tíma í fyrra segir Sigríður Kristinsdóttir sem rekur fasteignasöluna Hraun. Það kom góður kippur í söluna í febrúar og við sjáum að fasteignaverð hér fer stighækkandi. Kaupendur eru bæði héðan af svæðinu og fólk sem er að flytja hingað. Mest er sala í einbýlishúsum með bílskúr, fólk er að kaupa sér stærra húsnæði og svo eru aðrir sem vilja fara í minna húsnæði. Sigríður segir að núna sé nóg framboð á leiguíbúðum á staðnum og ekki er lengur sá flöskuháls sem var í þeim málum eftir að leigusali keypti margar íbúðir hér í fyrra til að leigja út, og þar með komnir fleiri aðilar með leigumarkaðinn á staðnum en bæjarfélagið. Leiga á íbúðarhúsnæði er um 500-600 kr. á fermetra.
Þó Hornfirðingar hafi ekki fengið neitt vilyrði um álver telur Sigríður að miklar framkvæmdir sem framundan eru í Sveitarfélaginu á næstu árum séu farin að hafa góð áhrif á fasteignamarkaðinum.





Skrifa athugasemd