Mars
USÚ þing
USÚ þing
Það var vel mætt a USÚ þingið sem var haldið að Smyrlabjörgum. Í ræðupúltinu er Magnús Jónasson.

15.03.2006 Mars

Fjölmennt á þingi USÚ

Síðastliðinn fimmtudag fór fram 73. þing USÚ en að þessu sinni var það haldið að Smyrlabjörgum. Mæting var mjög góð og voru 33 þingfulltrúar mættir á þingið. Gestir frá UMFÍ voru Björn Jónsson formaður og Sæmundur Runólfsson framkvæmdarstjóri. Á þinginu voru tekin fyrir venjuleg aðalfundarstörf og var stjórnin endurkjörin, í henni sitja Ragnhildur Einarsdóttir formaður, Kjartan Hreinsson ritari og Jóhanna Kristjánsdóttir gjaldkeri. Mikil bjartsýni ríkir innan sambandsins enda starfsemi mjög lífleg og margt spennandi framundan, svo sem Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður í sveitarfélaginu á næsta ári.

Það er ekki bara lífleg starfsemi hjá USÚ því mikil starfsemi er í aðildarfélögum þess.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica