Forseti Íslands og kona hans væntanleg í opinbera heimsókn
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorrit Moussaieff eru væntanleg í opinbera heimsókn til Hornafjarðar í síðustu viku apríl nk. Páll Björnsson sýslumaður hafði samband við bæjarstjórnina með skilaboð þess efnis að forsetinn óskaði eftir að koma hingað í opinbera heimsókn og var þeim boðum að sjálfsögðu svarað um hæl að forsetinn og fylgdarlið hans væri velkomið til okkar sagði Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar. Forsetaritari er væntanlegur á næstunni til að skipuleggja heimsóknina ásamt heimamönnum. Áætlað er að forsetinn og fylgdarlið hans komi með flugvél til Hornafjarðar 27.apríl og fari til baka 28.apríl.
Farið verður með gestina víðsvegar um sveitarfélagið en föst dagskrá er ekki komin.





Skrifa athugasemd