Mars
Hvannadalur, Nautastígur í Suðursveit 2005
Ferðafélag A-Skaft
Hvannadalur, Nautastígur í Suðursveit (úr myndasafni Mynd JE)

14.03.2006 Mars

Sumaráætlun Ferðafélagsins komin út

Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu hefur gefið út ferðaáætlun fyrir vorið og sumarið 2006. Fyrsta ferð félagsins verður sunnudaginn 19.mars á Suðurfjörur. Farið verður frá tjaldstæðinu kl. 11.00 og ekið suður á Mýrar og svo sem leið liggur niður með Hólmsá og út á fjörur. Greiðfært er á bílum alveg austur undir Hvanney og er svona fjöruferð hrein upplifun fyrir alla sem gaman hafa af útiveru ekki síst börnin. Það þarf varla að taka það fram að mjög nauðsynlegt er að hafa gott og holt nesti með í ferðina. Þeir sem ekki hafa komið á Suðurfjörur og gengið út í Hvanney skoðað stórgrýtta fjöruna og ekki síst Hornafjarðarós, þeir ættu ekki að sleppa svona ferð undir góðri leiðsögn. Ferðafélagið verður með nokkrar síðdegis og kvöldgönguferðir í sumar sem líka eru á virkum dögum s.s. gönguferð í kringum Reyðarártind og í Kastárdal-Kex. Af ,,þriggja skóa?? ferðum má nefna göngu um Svarthamra-Snjótinda og Haukstjörn í Álftafirði, Múlaskála að göngubrúnni við Einstigið og haustlitaferðin verður að þessu sinni í Bæjarstaðaskóg.

Að venju verður Jónsmessuganga, óvissuferð fyrir alla fjölskylduna. Í fyrra fóru um 70 manns í Jónsmessugönguna sem þótti mjög vel heppnuð.
Í fyrra var farin jeppaferð í Vaðlavík og Viðfjörð og í sumar verður haldið í Borgarfjörð eystri og Loðmundarfjörð,einstaklega fallegir staðir og margt að skoða.
Ferðafélagið á og sér um Múlaskála á Lónsöræfum. Skálinn er vel útbúinn með gistipláss fyrir allt að 30 manns og gekk rekstur hans í fyrra vel. Þeir sem áhuga hafa á að fá gistingu í skálanum geta haft samband við Rannveigu Einarsdóttur í símum 699-1424 og 478-1986 sem veitir allar upplýsingar um hann.

Aðalfundur ferðafélagsins verður haldinn í Nýheimum fimmtudaginn 16.mars kl.20.00 og eru nýir félagar velkomnir. Formaður ferðafélagsins er Rannveig Einarsdóttir.
Rétt er að geta þess að það þarf ekki skráður félagi í ferðafélaginu til að taka þátt í ferðum þess, bara drífa sig á stað, kynnast umhverfi okkar og njóta hollrar útiveru. Góða ferð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica