Hljómsveitin ANTIK með tónleika í Sindrabæ
Sunnudagskvöldið 12. mars n.k. mun hljómsveitin ANTIK halda tónleika hér á Hornafirði til að fagna velgengni þeirra á Samfés síðustu helgi en þar fóru strákarnir með frumsamda lagið "Hættið að hlæja" í keppnina og fengu þar verðlaun fyrir besta frumsamda texta og besta frumsamda lag. Tónleikarnir eru haldnir í Sindrabæ og opnar húsið klukkan 20:00 og kostar 500 kr inn. Ætlar hljómsveitin að spila frumsamin lög ásamt nokkrum leyndum smellum. Í hljómsveitinni eru Ragnar Ægir Fjölnisson, gítar og söngur, Elías Tjörvi Halldórsson, Bassi og bakrödd og Hafþór Imsland trommur. Nóg hefur verið að gera hjá þeim piltum upp á síðkastið og eru þeir búnir að ferðast víða núna síðustu 3 vikurnar. "Við skelltum okkur alla leið til Seyðisfjarðar og spiluðum þar á söngvakeppni SamAust og lentum í 2. sæti og komumst því áfram á Samfés sem var bara algjörlega frábært og fengum við mikla reynslu við að spila á þessum 2 stöðum" sagði Ragnar er við náðum tal á honum.
Framundan hjá strákunum ásamt tónleikunum eru Musiktilraunir 2006 en þar keppa þeir þriðjudagskvöldið 21. mars.
Heimasíða hljómsveitarinnar





Skrifa athugasemd