Mars
Sturla_IMG_4324
Sturla_IMG_4324
Sturla Böðvarsson að kynna Fjarskiptaáætlun "Ísland altengt" á Hótel Höfn

08.03.2006 Mars

Ísland altengt, kynnt á Hótel Höfn

Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson kynnti í kvöld á opnum fundi á Hótel Höfn Fjarskiptaáætlun til ársins 2010 undir heitinu "Ísland altengt" en Samgönguráðuneytið hefur gefið út kynningarrit um áætlunina sem dreift hefur verið inn á öll heimili landsins. Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar for yfir framkvæmd áætlunarinnar. Fundurinn á Hótel Höfn er einn af tæplega þrjátíu kynningarfundum sem haldnir eru víðsvegar um landið á næstu vikum. Grundvallaratriði Fjarskiptaáætlunar er að landsmenn sitji allir við sama borð óháð búsetu. Ísland verði þannig altengt. Gert er ráð fyrir því að þjónustugjöld einkarekinna fjarskiptafyrirtækja standi undir uppbyggingarkostnaði og rekstri þjónustunnar nema á einstaka svæðum þar sem stjórnvöld munu taka þátt í kostnaði við uppbyggingu.

Í Fjarskiptaáætlun er gert ráð fyrir að allir landsmenn geti tengst háhraðaneti fyrir lok ársins 2007 og er sérstök áhersla lögð á að
menntastofnanir landsins njóti slíkrar þjónustu sem allra fyrst.
GSM-farsímanetið verður þétt á öllum hringveginum og öðrum helstu
stofnvegum, á helstu ferðamannastöðum og minni þéttbýlisstöðum.

Jafnframt standi langdræg stafræn farsímaþjónusta til boða um allt land og á miðum við landið eftir að rekstri NMT-kerfisins lýkur árið 2008. Þá er gert ráð fyrir að allir landsmenn hafi aðgang að gagnvirku stafrænu sjónvarpi og jafnframt að dreifing sjónvarpsdagskrár RÚV, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, verði stafræn um gervihnött til sjómanna á miðum við landið og strjálbýlli svæða.

Í Fjarskiptaáætlun er lögð áhersla á öryggi almennra fjarskiptaneta innanlands og við umheiminn. Jafnframt lýsa stjórnvöld yfir vilja sínum til að stuðla að lækkun einingaverðs í fjarskiptatengingum milli landa og jöfnun verðs fyrir fjarskiptaþjónustu um land allt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica