Mars
Starfsfolk_Sphorn
Starfsfolk_Sphorn
Starfsfólkið í Sparisjóði Hornafjarðar og nágrennis er í sjöunda himni

08.03.2006 Mars

Eru í sjöunda himni

Starfsfólkið í Sparisjóði Hornafjarðar og nágrennis er í sjöunda himni, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ástæðan er sú að sjöunda árið í röð hafa sparisjóðirnir unnið íslensku ánægjuvogina. Íslenska ánægjuvogin er viðamikil könnun á viðhorfum landsmanna til 25 fyrirtækja í sjö mismunandi atvinnugreinum. Það eru Stjórnvísi, Samtök iðnaðarins og Gallup sem gera þessa könnun. Um leið og við fögnum, lítum við á þetta sem áskorun til að gera enn betur.

Af þessu tilefni er viðskiptavinum Sparisjóðsins á Höfn og Djúpavogi boðið upp á kaffi og konfekt í tilefni dagsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica