Kaupás sameinar rekstur Krónunnar og 11-11 í Miðbæ
Kaupás boðaði til opins Borgarafundar á Hótel Höfn í gærkvöldi þar sem fundarefni var rekstur 11-11 og Krónunnar á Höfn. Sigurður Arnar Sigurðsson forstjóri Kaupás byrjaði á að kynna rekstur fyrirtækisins og þar með þessar tvær verslanir hér á Höfn. Sagði Sigurður að rekstur 11 -11 verslunar hefði skilað hagnaði sl.ár en Krónan verið rekin með tapi en þetta væri alveg sú staða sem vænta mætti og þeir væru sáttir við. Nú er komin upp sú staða að Kaupfélag Héraðsbúa sem á bæði það húsnæði sem 11-11 er í og þar sem Krónan er í hefur sagt upp leigunni og rennur leigutíminn út í lok ársins. Sigurður sagði að þeim væri nauðugur kostur að grípa til einhverra ráðstafana og þær ráðstafanir sem þeir ætluðu að grípa til væri að sameina rekstur Krónunnar og 11-11. Við munum loka Krónuversluninni á Vesturbraut 10. mars þ.e. á föstudaginn. Við munum lækka vöruverð í 11-11 eins og það er í dag og verða með góð tilboð á nauðsynjavörum. Við munum ekki segja upp neinum starfsmönnum út af þessum breytingum og hefur öllum starfsmönnum Krónunnar verið boðið starf í 11-11.
Verslunarstjóri í 11-11 er Helga Vignisdóttir. Við munum, þennan tíma sem við eigum eftir að vera hér, reka 11-11 með samkeppnishæfu verði, það er alveg klár stefna og við munum strax fara í það sagði Sigurður. Við hefðum kosið að geta haldið áfram hér eins og verið hefur en því miður er staðan svona og við henni verður að bregðast. Hvort Kaupás hættir verslun á Höfn kemur svo í ljós á næstu 10 mánuðum.
Fjöldi manns mætti á fundinn og fékk Sigurður margar fyrirspurnir um framhald verslunarreksturs ef úr rættist með húsnæði og sagði hann það allt tekið til athugunar en ljóst væri að ekki væri markaður fyrir tvær lágvöruverslanir á staðnum væri það ætlun KBH að opna hér lágvöruverslun og missi þeir verslunaraðstöðu 11-11 í Miðbæ væri ekki annað að gera en pakka saman og fara.





Skrifa athugasemd