Skemmtiatriði voru að vanda frumsamin
Góuhóf Öræfinga sem haldið var í Hofgarði sl.laugardagskvöld og tóks á allan hátt mjög vel, skemmtinefnd og heiðursgestur, Guðni Ágústsson, stóðu sig með miklum sóma. Skemmtiatriði voru að vanda frumsamin með blöndu af söng og leiknum atriðum. Maturinn var að vanda framreiddur af þeim bræðrum Benedikt og Andra Jónssonum og sagði einn nefndarmanna að borðhaldið hafi tekið mun lengri tíma en áætlað var og ástæðan fyrir því var að fólk fór oftar að fá sér af matnum sem var hreint alveg frábær. Halldór Þorsteinsson í Svínafelli flutti að venju frumsaminn brag og Sigurgeir Jónsson á Fagurhólsmýri og Þorlákur Magnússon í Svínafelli aðstoðuðu með tónlistarflutningi. Margir fleiri komu að skemmtidagskránni og að henni lokinni spilaði danshljómsveit Friðjóns fyrir dansi fram eftir nóttu og var mikil þátttaka í dansi.
Sjá fleyri myndir í myndasafni




Skrifa athugasemd