Sungið, synt, hlaupið og stokkið
Ragnar Ægir Fjölnisson gerði góða ferða austur á Seyðisfjörð á s.l. laugardag þá tók Ragnar þátt í söngvarakeppni félagsmiðstöðva á Austurlandi SAMAUST og lék sjálfur undir ásamt félögum sínum í hljómsveitinni ANTIK þeim Elíasi Tjörva á bassa og Hafþóri Imsland á trommur var lag og texti frumsamið. Alls komu fram 13 söngatriði frá 8 félagsmiðstöðvum. Ragnar Ægir varð í öðru sæti og tekur því þátt í söngvarakeppni SAMFÉS sem verður í Íþróttamiðstöðinni í Varmá í Mosfellsbæ nú um helgina en hún er liður í SAMFÉSHÁTÍÐINNI stóru. Sigurvegari í söngvarakeppninni voru tvær stúlkur frá félagsmiðstöðinni Atóm í Neskaupsstað. 10. bekkingar leggja land undir fót á morgun föstudaginn og fara á Samféshátíðina og styðja vel við bakið á Ragnari og félögum. Fararstjóri er Lars J. Andrésson. Áheitasundið hjá 10. bekk til að afla fjár í ferðina tókst vel og voru krakkarnir duglegir að synda. Vilja þau þakka öllum sem studdu þau kærlega fyrir aðstoðina.
Það var margt ungt fólk frá Hornafirði á ferðinni um síðustu helgi. Unga fólkið tók m.a. þátt í Meistaramóti Íslands í frjálsum 12 til 14 ára og einnig í fimleikamóti og stóð sig með prýði. Má geta þess að Sveinbjörg Zophoníasdóttir varð Íslandsmeistari í kúluvarpi 14 ára stúlkna og varð í 2.sæti í hástökki og 3.sæti í langstökki. Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni en Sveinbjörg er dóttir Guðrúnar Ingólfsdóttur margfalds Íslandsmeistara í kúluvarpi og Zophoníasar Torfasonar sem einnig var góður íþróttamaður.
Semsagt allt á fullu hjá unga fólkinu.





Skrifa athugasemd