Samkvæmt núverandi skipulagi styttist vegurinn um 3,2 km
Jón Bjarnason starfsmaður hjá Vegagerðinni á Hornafirði hafði samband við vefinn vegna fréttar á vefnum og bað um að fram kæmi, í sambandi við umræðu vegamála í Öræfum, að samkvæmt núverandi skipulagi styttist vegurinn milli Skeiðarár og Svínafellsár um 3,2 km og sé ,miðað við leiðina Skeiðará ? Kotá er stytting 3,7 km. Verði skipulaginu breytt eins og talað er um segir Jón styttingu leiðarinnar verða meiri. Á meðfylgjandi mynd má sjá teikningu frá Vegagerðinni sem sýnd var á fundinum í Öræfum, inn á hana hefur Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur bætt punktalínunum sem sýna veglinur eins og þær eru í þegar staðfestu / samþykktu aðalskipulagi.
Sjá einnig aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar





Skrifa athugasemd