Mars
Mikil stemning á Öskudeginum
Öskudagurinn var í gær, þá mátti sjá krakka klædda í ýmiskonar grímubúninga gagna um götur, heimsækja fyrirtæki og taka sönginn til að fá nammi í pokann í staðinn. Veður var gott en frekar kalt. Kattar- og tunnuslagurinn fór fram í Íþróttahúsinu en þar fóru einnig fram aðriði nemend eins og hefð er fyrir á Öskudaginn. SkjáVarp sýndi í gærkvöldi myndir frá Hafnarskóla af krökkunum eins og gert hefur verið undanfarin ár og er það orðin fastur liður enda mikil eftirvænting og spenningur hjá krökkunum að fá að sjá sig í sjónvarpinu.
Myndir frá Öskudeginum verða endursýndar á Skjávarpi föstudagskvöld á milli kl. 18:00 og 21:00.





Skrifa athugasemd