Nær allir íbúar í Öræfum mættu á íbúafund í Hofgarði
Bæjarstjórn Hornafjarðar boðaði til almenns íbúafundar í Hofgarði í Öræfum sl. mánudagskvöld. Aðalmál fundarins voru skipulagsmál, breytingar á aðalskipulagi og skólamál í Öræfum. Örn Bergsson á Hofi sagði að nær allir íbúar í Öræfum hefðu mætt á fundinn enda báðir þessir málaflokkar mikið hagsmunamál þeirra sem þar búa. Þetta var kröftugur fundur sagði Örn, hann varð dálítið harður annað slagið, það hvessti mjög á köflum og menn sögðu sína meiningu. Menn hér eru mjög ósáttir með tillögur Vegagerðarinnar um breytingar á aðalskipulagi og nú er það sveitarstjórnin sem ræður og ef hún leyfir ekki breytingar á aðalskipulagi þá verður Vegagerðin að beygja sig undir það. Ljóst er að það gæti þurft að fara í þessar vegaframkvæmdir fyrr en áætlað er þar sem margar brýr hér í Öræfum eru að verða ónýtar og t.d. er brúin á Skaftafellsá orðin ónýt. Fáist þær breytingar samþykktar sem Vegagerðin hefur sótt um styttist þjóðvegur eitt í Öræfum um 500-700 metra og verður talsvert sunnar en nú er á svæðinu frá Virkisá að Skeiðará.
Öræfingar hafa verið mjög ósáttir með stöðu sína í skólamálum eins og hún hefur verið og mikil nauðsyn er að finna hagkvæma lausn á þeim málum sem allir geta verið sáttir við. Samþykkt er fyrir að kennsla 8.-9.-og 10. bekkjar verði í Hofgarði en þá er það félagslega hlið málsins sem er vandamál þegar svo fáir nemendur eru. Á fundinum var bæjarstjórnarmönnum afhent mótmælaskjal undirskrifað af íbúum í Öræfum og var hún svohljóðandi: Íbúafundur Öræfinga, haldinn á Hótel Skaftafelli 25. febrúar 2006, mótmælir hugmyndum um breytingar á aðalskipulagi á þjóðvegi nr. 1, frá Skeiðará að Virkisá. Fundurinn leggur áherslu á að núgildandi aðalskipulag standi. Afrit af þessu var sent til Vegagerðarinnar.





Skrifa athugasemd