Febrúar
Verbúðargleði 2006
Verbúðargleði 2006
Nóni, Einsi, Stebbi og Siggi
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

27.02.2006 Febrúar

Um hundrað manns mættu á Verbúðargleðina

Fyrir nokkrum vikum sögðum við frá því að til stæði að þeir sem stunduðu verbúðarlífið hér á árum áður ætluðu að hittast á Fjörukránni í Hafnarfirði til þess að rifja upp þá gömlu og góðu tíma. þessi viðburður varð að veruleika um síðustu helgi og var haldið undir nafninu "Verbúðargleðin 2006". AÐ sögn Andrésar Kolbeinssonar þá heppnaðist gleðin eins og best var á kosið í hvívetna. Fólk byrjaði að streyma að strax um níu leitið og komu menn víðsvegar að, frá Ísafirði, Vestmannaeyjum og Húsavík svo einhverjir staðir séu nefndir. Það urðu miklir fagnaðarfundir enda höfðu flestir ekki hist í fleiri tuga ára og því mikið til að tala um. Þegar gerð var talning á manskapnum um miðnætti var það staðfest að um eitthundrað manns væru mættir.

Gleðin endaði um morguninn um fimm leitið og allir mjög ánægðir eftir frábært hóf. Ljóst er að þeir fjölmörgu sem ekki höfðu kost á að mæta munu naga sig í handarbökin yfir að hafa misst af tækifæri til að hitta gamla vini og kunningja sagði Andrés að lokum.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica