Vangaveltur um veðurfar í janúar nú og áður
Það er yndislegt að fylgjast með því á vorin þegar tré og runnar eru að laufgast en þegar það byrjar um miðjan febrúar þá er ekki sama ánægjan ríkjandi því ólíklegt er að ekki komi vetrarveður með frosti og hvassviðrum á næstu vikum. Til að geta borið síðastliðinn janúar saman við janúarmánuð undanfarinna ára fékk vefurinn miklar og góðar upplýsingar hjá Guðrúnu Gísladóttur landfræðingi á Veðurstofu Íslands og kemur hér smásamantekt úr þeim yfir úrkomu í janúar á veðurathugunarstöðum hér í sýslunni. Ekki er hér gerður greinarmunur á úrkomu hvort hún er snjór eða vatn. Þegar skoðaður er meðalhiti í janúar árin 1996-2005 kemur í ljós að aðeins tvö ár var hitinn í mínus þ.e. 2005 með -0,3° og 2004 með -0,1° og mesti meðalhiti í janúar var 3,1 árið 1996.
Akurnes:
Meðalhiti í janúar var 2,2 stig og mánaðarúrkoma 266,1mm, var 100mm árið 2005.
Mesta dagsúrkoma í janúar var 41,2mm
Tíu dagar mældust úrkomulausir
Á tímabilinu 1993-2005 mældist mest úrkoma í janúar 379,8mm sem var árið 2002.
Hólar.
Úrkoma í janúar 2006 mældist 234,6mm.
Mesta dagsúrkoma 42,6mm.
Átta dagar úrkomulausir.
Á tímabilinu 1991-2005 mældist mest úrkoma í janúar 408,8mm sem var árið 2002.
Stafafell í Lóni:
Úrkoma í janúar 2006 mældist 331,3mm.
Mesta dagsúrkoma 62,6mm.
Sex dagar úrkomulausir.
Á tímabilinu 1991-2005 mældist mest úrkoma í janúar 485,1mm sem var árið 2002.
Kvísker:
Úrkoma í jan. 2006 mældist 700,2mm.
Mesta úrkoma á dag var 4.jan. 110,1mm, þar næst 80,1mm. 30.jan.
Fimm dagar úrkomulausir
Tímabilið1991-2005 var úrkoma í jan. mest 905,3mm. árið 2002 og
Á tímabilinu 1991-2005 mældist mest úrkoma í janúar 905,3mm sem var árið 2002 og
sólarhringsúrkoma 10.janúar 2002 mældist 293,3mm. sem er mesta úrkoma
sem mælst hefur hérlendis á einum degi.
Mesta ársúrkoma tímabilið 1962-2005 voru 4630,4mm árið 2002.
Skaftafell
Úrkoma í jan.mældist 437,6mm.
Mesta úrkoma á dag var 30.jan. 64,3mm.
Sex dagar úrkomulausir.
Tímabilið 1991-2005 var úrkoma í jan. mest 327,8mm. árið 1992.





Skrifa athugasemd