Febrúar
Samfesball
Samfesball
Á Samfésballi (úr myndasafni Heppuskóla)

24.02.2006 Febrúar

Samfésferð og söngvakeppni

Hin árlega Samféshátíð (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Mosfellsbæ við Varmá helgina 3.og 4. mars nk. Þarna hittast ungmenni víða af að landinu og skemmta sér saman eina helgi. Að venju gengst félagsmiðstöðin Þrykkjan fyrir ferð á hátíðina. 10. bekkingum er gefinn kostur á að fara á hátíðina sem hefst með stórballi á föstudagskvöldið 3.mars þar sem flestar vinsælustu unglingahljómsveitir landsins koma fram á tveimur sviðum. Á laugardaginn verður síðan billjardmót og söngvarakeppni SAMFÉS. Ráðgert er að koma heim aðfararnótt sunnudagsins. Unglingarnir gista í félagsmiðstöðinni Verinu í Hafnarfirði eins og þeir hafa gert undanfarið. Til að afla fjár í ferðina ætla unglingarnir að synda áheitasund í sundlauginni sem hefst í dag og lýkur um hádegi á morgun. Þau ætla að synda sem nemur c.a.vegalengdinni út að Flatey á Mýrum.

Á morgun laugardag fer Ragnar Ægir Fjölnisson frá Þrykkjunni til að taka þátt í söngvakeppni félagsmiðstöðva á Austurlandi sem haldin er í Herðubreið á Seyðisfirði. Ragnar Ægir bar sigur úr býtum í söngvakeppni Þrykkjunnar sem haldin var í desember. Auk þess að syngja leikur Ragnar Ægir undir á gítar og nýtur aðstoðar félaga sinn þeirra Elíasar Tjörva sem spilar á bassa og Hafþórs Imslands sem spilar á trommur. Ragnar Ægir flytur frumsamið lag og texta sem heitir ?Hættið að hlæja?. Fjórir efstu í keppninni fyrir austan komast síðan áfram í söngvakeppni Samfés.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica