Febrúar
Hvannabraut 3-5
Hvannabraut 3-5
Hvannabraut 3-5
Mynd 2 af 2
1 2

23.02.2006 Febrúar

Ætla að breyta Hvannabraut 3-5 í gistiheimili

Tvö tilboð bárust á húsin á Hvannabraut 3-5 þar sem dvalarheimilið Skjólgarður hefur verið starfrækt og var tilboði Ránarslóðar ehf. tekið. Húsið er 667 fermetrar og var upphaflega tvö viðlagasjóðshús sem breytt var í dvalarheimili fyrir aldraðra og tengibygging sett milli húsanna. Eigandi Ránarslóðar ehf. er Halldór Sævar Birgisson og fjölskylda sem reka Gistiheimilið Hvamm. Halldór fær húsið við Hvannabrautina afhent 15. mars og þá verður hafist handa við að breyta því í gistiheimili og vonast hann til að allt verði tilbúið þar fyrir sumarið. Gert er ráð fyrir að þar verði 18 gistiherbergi sem er góð viðbót við þau 15 sem eru í Hvamminum. Rétt er að geta þess að Gistiheimilið Hvammur þykir einkar þægilegt, ódýrt, vistlegt og þjónusta góð.

Halldór segist vera ánægður með kaupin, "mér finnst þetta mjög spennandi og það var ekki hægt að láta svona fram hjá sér fara". Hann á von á að um fimm manns starfi við bæði gistiheimilin í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica