Halda grænmetisnámskeið fyrir Hornfirðinga
Nú á tímum er mikið rætt um hollt mataræði og að við þurfum að vera meðvituð um hvað við setjum ofan í okkur. Það er hver sjónvarpsþátturinn á færur öðrum sem reynir að kenna okkur hvað má betur fara við val á því sem við borðum og hvernig við matreiðum það. En ekkert er betra en að læra það af fyrstu hendi og því hafa Kristján Guðnason kokkur og Hrafnhildur Magnúsdóttir tekið saman höndum og útbúið námskeið þar sem kennt verður að búa til góða grænmetisrétti. Að sögn Kristjáns þá hentar þetta námskeið bæði þeim sem eru að feta sig áfram í gerð grænmetisrétta og þeim sem eru lengra komnir í þeirri tegund matseldar. Námskeiðið fer fram heima hjá Hrafnhildi næst komandi mánudagskvöld og eru það 10 manns sem komast að á námskeiðinu.
Kristján segir að frá því að byrjað var að auglýsa námskeiðið þá hefðu viðbrögðin ekki látið á sér standa og ar fullt á námskeiðið. Kristján reiknar hann með því að þau muni að bæta við öðru námskeiði.
Hægt er að senda fyrirspurn vegna fyrirhugaðs námskeiðs á hollusta@hfn.is.





Skrifa athugasemd