Flokkarnir farnir að skoða, skrá og skipuleggja
Undirbúningur fyrir sveitarstjórnakosningarnar er hafin og Hornfirskir stjórnmálamenn farnir að skoða, skrá og skipuleggja. Björn Sigfinnsson formaður framsóknarflokksins segir að þar sé unnið að uppstillingu á lista og ekkert prófkjör á dagskrá. Við erum búnir að fá fólk, bæði konur og karla á listann en það er ekki komin nein dagsetning á hvenær hann verður birtur, allavega ekki fyrr en einhvern tíma í mars. Sjálfstæðismenn auglýstu eftir fólki sem hefði áhuga á að taka þátt í sveitarstjórnarmálum fyrir flokkinn og sagði Snorri Aðalsteinsson formaður sjálfstæðismanna að viðbrögð hefðu verið nokkuð góð. Við erum búnir að fá nægjanlega marga og búið er að kynna um tíu manns fyrir trúnaðarmannaráði. Þetta er ungt kjaftfort fólk sem hefur skoðun og þorir að segja álit sitt. Við verðum með prófkjör en ekki er endanlega búið að ákveða hvenær og það er nokkuð jafnt á milli kynja, góð uppröðun miðað við það sem hefur verið.
Samfylkingin auglýsti eftir fólki sem hefði áhuga á að vera á lista Samfylkingarinnar í framboði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor og var Árni Þorvaldsson formaður Samfylkingarinnar á Hornafirði þokkalega ánægður með viðbrögð fólks. Samfylkingin stefnir á framboð hér í vor og verður með uppstillingu á lista.
Við erum að vinna í málunum og hvernig listinn lítur út kemur í ljós innan einhverra vikna, vonandi í næsta mánuði sagði Árni formaður.





Skrifa athugasemd