Febrúar
Tóft gamla hesthússins
Tóft gamla hesthússins
Tóft gamla hesthússins í Bölta. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í ræðupúlti.

21.02.2006 Febrúar

Úthlutað styrk til uppbyggingar á gamla hesthúsinu í Bölta

Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað styrk til uppbyggingar á gamla hesthúsinu í Bölta í Skaftafellsþjóðgarði. Búið er að hreinsa hesthústóftina, hlaða veggi hennar og undirbúa fyrir lokaáfanga verksins segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Byrjað verður á verkinu 25.júní í sumar og til vinnu við það fáum við nokkra sjálfboðaliða frá Englandi, einnig hefur Ari Jóhannsson, sem er sérfræðingur í hleðslu úr torfi og grjóti verið ráðinn til verksins en hann hlóð upp veggina sem komnir eru í tóftinni. Í maí koma nokkrir evrópskir sjálfboðaliðar á vegum EFTA og er það samkvæmt beiðni frá bandalaginu og greiðir það með þeim þ.e. ferðir og fæði en við sjáum þeim fyrir gistingu,segir Ragnar.

Koma þessa hóps er samkvæmt alþjóðlegum samningi um að ungt fólk geti farið á milli landa að vinna og gildir hann um öll aðildarlönd sem EFTA stendur að. Aðal bækistöð þessa hóps verður í Skaftafelli og einnig munu þeir fara víðar um landið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica