Góð mæting hjá hestamönnum á vetrarleikana um helgina
Hestamannafélagið Hornfirðingur var með fyrstu vetrarleika sína á þessu ári í gær og tókust leikarnir eins og best varð á kosið sagði Kjartan Hreinsson formaður félagsins. Þarna var góð mæting hjá hestamönnum, góðir hestar og fjöldi manns að fylgjast með. Þetta var svona óhefðbundið mót mest til að koma mönnum og hestum á stað. Keppt var í öllum flokkum og verðlaun veitt og á eftir voru nýbakaðar vöfflur og kaffi í Stekkhól. Næstu vetrarleikar verða 19.mars og aðalfundur hestamannafélagsins Hornfirðings verður haldinn næstkomandi fimmtudag í Stekkhól.Um 140 manns er í hestamannafélaginu sem er næst stærsta félagið innan ÚSÚ. Laugardaginn 25.febrúar n.k. verður Ístölt Austurland á Egilsstöðum sem hestamannafélagið Freyfaxi stendur fyrir og þar er öllum hestamannafélögun heimil þátttaka. Kjartan á von á að 5-6 Hornfirskir hestamenn fari þangað með gæðinga sína og taki þátt í keppni og þeim sem leita vilja frekari upplýsinga skal bent á að hafa samband við Berg Hallgrímsson formann Freyfaxa í síma 864-6420.
Um byggingu á reiðhöll við Stekkhól segir Kjartan að nú sé þetta allt að komast í gegn, nú stendur bara á að velja á milli tveggja tillagna þ.e. breikka húsgrind, sem keypt var á Stokksnesi á sínum tíma, og klæða hana eða kaupa nýtt innflutt hús.
Ríkisvaldið er búið að stofna sjóð til að fjármagna sín loforð í þessari framkvæmd og ég reikna með að við fáum úr honum í samræmi við það sem bæjarfélagið hér leggur fram sem eru 16 m.kr. á sjö árum, því Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra lofaði krónu á móti krónu er bæjarfélagið legði til. Ég á von á að við getum byrjað á húsinu núna fyrir vorjafndægur og að það verði tilbúið í haust.
Húsið verður um 1300 ferm. og verður hægt að bjóða það til afnota við margskonar tækifæri og ekki síst verður það hentugt fyrir ýmsar íþróttagreinar.





Skrifa athugasemd