Febrúar
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði (úr myndasafni)

17.02.2006 Febrúar

Nýr starfsmaður í Þjóðgarðinum í Skaftafelli

Hafdís Roysdóttir í Svínafelli, hóf störf í Þjóðgarðinum í Skaftafelli um áramótin. Hafdís sér aðallega um fræðslumál þjóðgarðsins og er núna að vinna að gerð bæklinga fyrir Ingólfshöfða og einnig erum við að vinna í gönguleiðakorti fyrir Öræfasveit segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Gönguleiðakortið nær yfir Öræfasveit og austur að Jökulsárlóni og núna erum við að fá athugasemdir og upplýsingar um örnefni sem við munum svo bera undir landeigendur og fá samþykki þeirra. Helga David,starfsmaður þjóðgarðsins með aðstöðu í Nýheimum, er að vinna að samskonar korti fyrir Lónið og Rannveig Einarsdóttir er langt komin með að kortleggja gönguleiðir á Mýrum. Þegar eru komin út gönguleiðakort fyrir Nes og Suðursveit og gangi allt samkvæmt áætlun verða þau kort sem eru í vinnslu tilbúin fyrir sumarið og þar með komin gönguleiðakort fyrir alla sýsluna.

Við erum að vinna að áætlun um þjónustusamninga við landeigendur á svæðinu frá Laka og austur í Lónsöræfi, segir Ragnar, þannig að í stað þess að ráða marga landverði og starfslið í þjóðgarðinn verði hægt að gera þjónustusamning við landeigendur hvern á sinni landareign sem þá mundu sýna og kynna sitt svæði og fá greiðslu fyrir sín störf. Þessi áætlun okkar hefur fengið góðar undirtektir og er ráðgjafanefnd þjóðgarðsins mjög hlynnt henni.

Góður árangur varð af tilraun Ragnars í fyrra með að beita sauðfé á lúbínusvæði í Morsárdal til að eyða lúbínunni og verður því haldið áfram í vor og vill hann fá kindurnar á svæðið fyrr en sl vor.

Ragnar segir að ferðamenn hafi komi í þjóðgarðinn nær alla daga það sem af er árinu og það séu svo til allt útlendingar. Þó þjóðgarðurinn sé lokaður yfir veturinn tökum við alltaf á móti þeim sem koma hingað og hafa samband við okkur. Óhemjumikið hefur rignt í Skaftafelli undanfarið og í janúar mældist úrkoman 440mm og hefur Ragnar aldrei mælt jafn mikla úrkomu þar yfir veturinn og úrkoman nær alltaf rigning, aðeins fimm dagar úrkomulausir í janúar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica