Björgvin Óskar hlýtur viðurkenningu Tæknifræðingafélags Íslands
Þann 14.janúar sl. útskrifaðist ungur Öræfingur, Björgvin Óskar Sigurjónsson á Litla-Hofi frá Háskólanum í Reykjavík sem byggingatæknifræðingur B.Sc.af burðarvirkjasviði. Við útskriftina var honum veitt viðurkenning frá Tæknifræðingafélagi Íslands fyrir ,, sérlega vel unnið og áhugavert lokaverkefni við brautskráningu frá Háskólanum í Reykjavík" eins og stendur á viðurkenningunni undirritaðri af Einari Jónssyni formanni Tæknifræðingafélags Íslands. Björgvin var að vonum hamingjusamur með viðurkenninguna og þennan stóra áfanga og sagði að sér væri það mikill heiður að fá viðurkenningu frá þessum aðilum þar sem þeir eru beintengdir atvinnugeiranum. Með þessari viðurkenningu sá maður einnig að öll vinnan sem búið er að inna af hendi við verkefnið hafði borgað sig.
Verkefnið mitt heitir "Léttar útveggjaeiningar úr stáli" segir Björgvin, og fjallar það um notkun útveggjaeininga úr stálstoðum. Í verkefninu er fjallað um framleiðslu stálstoðanna, byggingareðlisfræðileika eininganna, kosti og galla eininganna m.t.t. aðstæðna hér á landi, hvort þær uppfylli íslensku byggingarreglugerðina . Ritgerðin endaði með því að vera rúmlega 170 blaðsíður á lengd með viðaukum og teikningum. Helstu niðurstöður verkefnisins voru þær að það getur verið vænlegur kostur að byggja útveggi úr þessum stáleiningum bæði vegna gæða þeirra, eiginleika og síðast en ekki síst kostnaðarleg því þær reyndust ódýrastar af öllum algengustu byggingaraðferðunum sem notaðar eru hér á landi.
Vinnan við lokaverkefnið hófs í byrjun september og stóð hún yfir til 7. desember en þann dag rann út skilafrestur á lokaverkefninu. Í kringum 650-700 klukkustundir fóru í verkefnið og gat það stundum tekið á. Til að mynda var vinnudagurinn um 20 klukkustundir seinustu vikuna áður en skilin á verkefninu var. Þá var ég að vinna í verkefninu frá um 9 á morgnanna til um 5 á nóttunni.
Um miðjan september fór ég til Finnlands vegna verkefnisins til þess að kynna mér byggingaraðferðina og einnig til þess að afla mér gagna um hana. Ég var um 4 daga í Finnlandi og talaði við menn sem vinna hjá stálframleiðandanum sem búa til einingarnar. Þessi stálframleiðandi er einn sá stærsti Evrópu en fyrirtækið heitir Ruukki. Þessi ferð var mjög gagnleg fyrir verkefnið og hjálpaði mér mjög mikið. Leiðbeinandi minn í verkefninu var hornfirðingurinn Jón Guðmundsson byggingarverkfræðingur og var ástæða þess sú að ég vann á stofunni hjá honum síðasta sumar.
Björgvin útskrifaðist úr FAS vorið 2001 og var veturinn eftir á sjó frá Hornafirði, hafði stundað sjóinn þaðan öll sumur frá 1997 og 2002 hóf hann nám í byggingartæknifræði í Tækniháskólanum.
Í dag bý ég, ásamt kærustunni minni Hólmfríði Þrúðmarsdóttur sem er einnig að austan, í íbúð í Breiðholtinu sem ég keypti um leið og ég byrjaði í skólanum. Ég vinn hjá Verkfræðiþjónustunni ehf., hjá Jóni Guðmundssyni, eins og ég gerði seinasta sumar, segir Björgvin Óskar í lokin.
Hornafjörður.is sendir honum bestu hamingjuóskir með útskriftina og viðurkenninguna.





Skrifa athugasemd