Febrúar
bjorgunarskip_3
bjorgunarskip_3
Björgunarskipið Ingibjörg

13.02.2006 Febrúar

Sótti slasaðan skipverja um borð í Vilhelm Þorsteinsson

Björgunarskipið Ingibjörg á Hornafirði sótti í morgun slasaðan skipverja um borð í Vilhelm Þorsteinsson frá Akureyri og fór með hann til Hafnar þar sem hann fékk góða aðhlynningu á heilsugæslustöðinni. Þetta er önnur ferð okkar til að sækja slasaðan mann um borð í skip sagði Sigurður Guðmundsson skipstjóri og þetta gekk ljómandi vel. Það var mun verra í sjóinn í þessari ferð en áður, ölduhæð var 3,3 m þegar komið var út og 4,1 þegar við komum til baka en við fengum ekki brot á okkur, náðum að keyra eftir því og skipið er svo snöggt að það náðist að sneiða milli brotanna. Vel gekk að koma slasaða manninum um borð í Ingibjörgu og var honum slakað niður í krana. Ferðin í heild tók 1,15 klst. og sagði Sigurður útkallstíma, þar til lagt var frá bryggju, hafi verið 10 mínútur.

Þetta gekk allt vel, strákarnir eru búnir að vera mjög duglegir að æfa sig og eru með vinnukvöld í björgunarsveitinni einu sinni í viku og þetta er um 15 manna hópur sem er orðinn vel þjálfaðir á björgunarskipið og 3 skipstjórar til taks en gert er ráð fyrir 6 manna áhöfn á skipið. Þetta björgunarskip okkar er mikil eðalfleyta og algjört þarfaþing að hafa hér og búið að sanna sjóhæfni sína við þær aðstæður sem hér eru.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica