112 dagurinn á Höfn laugardaginn 11.2
Það verður mikið um að vera hjá viðbragðsaðilum hér á Höfn á morgun laugardaginn 11. febrúar en þá verður haldinn í annað skipti á landsvísu 112 (einn, einn tveir) daginn. Opið hús verður hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar og Slysavarnardeildinni Framtíðinni í Björgunarsveitarhúsinu við Álaugarveg, hjá Rauðakrossdeild Hornafjarðar við Hafnarbraut og Slökkvilið Hornafjarðar mun kynna starfsemi sína í Slökkvistöðinni við Álaleiru. Þar munu verða kveikt bál og gestum verður boðið upp á að beita slökkvitækjum og eldvarnarteppum til að ráða niðurlögum eldsins. Hægt er að heimsækja staðina frá kl. 13-16 og um að gera að kynna sér starfsemi félaganna og skoða húsnæði og búnað þeirra. Að sjálfsögðu er boðið upp á kaffi á staðnum.
Um kl. 13:00 munu viðbragðsaðilar á Höfn aka um götur bæjarins. Tilgangur 112 dagsins er að vekja athygli á neyðarlínunni og símanúmerinu 112 ásamt því að kynna starfsemi viðbragðsaðila.





Skrifa athugasemd