Boðið verður upp á tvær Nordjobb stöður hér í sumar
Frá og með 2. janúar síðastliðnum var hægt að byrja að sækja um Nordjobb fyrir sumarið 2006. Á aðeins tveimur vikum hefur áhuginn verið gífurlegur og heimasíða verkefnisins verið mikið skoðuð. Alls hafa borist tæplega tvö þúsund umsóknir frá ungmennum í leit að ævintýrum á þessum stutta tíma. Nordjobb hefur starfað frá árinu 1985 og hafa um sextán þúsund ungmenni tekið þátt í verkefninu síðan þá. Á hverju ári fá um 7-800 Norðurlandabúar á aldrinum 18-28 ára starf gegnum verkefnið, sem fjármagnað er af norrænu ráðherranefndinni, en stýrt af Norrænu félögunum í einstökum löndum. Nordjobb er frábær möguleiki fyrir íslensk ungmenni að kynnast nágrannalöndunum og bæta kunnáttu í Norðurlandatungumálunum.
Á vegum verkefnisins er boðið upp á spennandi og fjölbreytta tómstundadagskrá auk þess sem þátttakendum er útvegað húsnæði. Umsóknarfrestur er til 31. maí næstkomandi, en hægt er að sækja um á heimasíðu Nordjobb www.nordjobb.net. Til að auka fjölbreytni umsækjenda, er ungt fólk af landsbyggðinni sérstaklega hvatt til að sækja um.
Samþykkt hefur verið að sveitarfélagið Hornafjörður bjóði upp á tvær Nordjobb stöður næsta sumar.
Verkefnisstjóri Nordjobb á Íslandi, Alma Sigurðardóttir, á skrifstofu Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, veitir frekari upplýsingar um verkefnið í s. 551 0165 / 899 9210 eða gegnum netfangið island@nordjobb.net.





Skrifa athugasemd