Febrúar
Kvennakórskonur á fullu
Kvennakórskonur á fullu
Kvennakórskonur í fjáröflunarstarfsemi (úr myndasafni)

08.02.2006 Febrúar

Kvöldið verður spennuþrungið

Þá styttist í hina margrómuðu árshátíð Kvennakórs Hornafjarðar. Árshátíðin verður haldin á Hótel Höfn þann 25. febrúar og er óhætt að segja að kvöldið verður spennuþrungið. Stórhljómsveit Bjarts Loga spilar fyrir dansi og er von undirbúningsnefndar að vinir til sjávar og sveita sjái sér fært að mæta og eiga með kvennakórskonum drepfyndna og hrikalega skemmtilega stund. Að þessu sinni er það Alt röddin sem sér um árshátíðina og eru æfingar komnar vel á veg ásamt allri skipulagningu. Mjög mikil leynd er yfir öllu en nefndin getur þó gefið upp að maturinn verður yndislegur og margt á eftir að koma á óvart.

Fleiri fréttir af undirbúningnum eru væntanlegar svo fylgist með.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica