Febrúar
Þokkalegur afli hjá línubátum undanfarið
Það hefur verið alveg þokkalegur afli hjá línubátum undanfarið sagði Ólafur Einarsson á Hafnarvoginni þegar vefurinn spurði hann frétta á hafnarsvæðinu. Loðnuskipin Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson eru bæði á veiðum og einhverjir af bátunum eru að fara á netaveiðar en Erlingur er eini báturinn sem verið hefur á netum. Um sl. helgi lestaði skip 1100 tonn af flokkaðri perlumöl sem fór til Færeyja.
Hafnarnefnd hefur samþykkt að dýpkun á höfninni verði boðin út á næstunni.





Skrifa athugasemd