Febrúar
Hönnunarkeppni véla- og verkfræðinema
Hönnunarkeppni véla- og verkfræðinema
Baldur Bjarnason sigurveragi í hönnunarkeppni véla- og verkfræðinema með verðlaunin. (@velin)
Mynd 2 af 2
1 2

07.02.2006 Febrúar

Baldur sigraði í hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema

Véla- og iðnaðarverkfræðinemar við Háskóla Íslands halda hönnunarkeppni á hverju ári og að þessu sinni var keppnin með aðeins öðru sniði en venjulega þar sem þrautin var alfarið unnin í vatni. Sigurvegari í keppninni var Hornfirðingurinn Baldur Bjarnason (Jakobssonar) með tæki sitt SF Óskapnað, sem er tæki til að sækja golfkúlur út í vatn. SF Óskapnaður sem Baldur hannaði og smíðaði leysti þrautina með 25 stigum í fyrri atrennu og var með fullt hús stiga, 29 stig, í seinni umferð. Þetta óvenjulega heiti á tækinu segir Baldur vera að SF svo ljóst sé að heimahöfnin sé Hornafjörður og Óskapnaður vegna þess að honum fannst það hæfa útliti tækisins. Baldur hlaut í verðlaun HP Compaq fartölvu, dýrustu og bestu gerð, frá Opnum Kerfum einnig farandverðlaunagrip frá Marel ásamt bol merktum Marel. Það var Marel sem gaf verðlaun fyrir bestu hönnun og einnig frumlegustu hönnunina.

Einn þeirra sem var í undirbúningsnefnd þ.e. hannar brautina, skipuleggur keppnina og heldur hana er Hornfirðingurinn Sveinbjörn Pálsson (Ólafssonar). Nefndin stóð sig með eindæmum vel og leystu verk sitt með mikilli prýði.
Baldur er á öðru ári í rafmagnsverkfræði og segist hann stefna á að ljúka BSc gráðu vorið 2007 og þá væntanlega fara eitthvert út í tveggja ára Ms nám eftir það.

Sjá nánar um keppnina á heimasíðu keppninnar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica