Stefna til gleðskapar þeim sem stunduðu verbúðarlífið á Höfn
Vegna vaxandi fortíðarþrár hafa félagarnir Stebbi Sturla, Óli pípa og Drési dauði (Andrés Kolbeins) ákveðið að stefna til gleðskapar þeim saman sem bjuggu á verbúðunum Skakkanum og í Ásgarði á tímum verbúðarlífs (1975-1985). Tilgangur gleðskaparins er að rifja saman upp þá gömlu og góðu daga þegar verbúðarlífið stóð sem hæst. Þeir hornfirðingar og aðrir sem glöddu vertíðar- og farandverkafólkið með heimsóknum sínum á verbúðirnar hvattir til að mæta. Við erum að reyna að hafa upp á flestum sem voru með á þessum skemmtilegu árum, í minningunni allavega og viljum endilega að sem flestir mæti segir Andrés Kolbeinsson. Séu það einhverjir sem hafa óljósa minningu um að hafa stundað verbúðarlífið á þessum tíma, vita af einhverjum sem gerðu það eða þeir sem muna mjög vel eftir verbúðarlífinu geta haft samband við þá félaga til að sannreyna minninguna og fá nánari upplýsingar um gleðskapinn, Stebbi Sturla 862 0101, Óli pípa 820 1260 og Andrés Kolbeins 893 0011.
Þeir félagar eru að leita að myndum frá þessum tíma og séu það einhverjir sem eiga slíkar og tengjast verbúðarlífinu þá eru þeir vinsamlegast beðnir að senda línu á Stefán Sturlu (stefansturla@vortex.is)
Gleðskapurinn fer fram í Fjörukránni í Hafnarfirði laugardagskvöldið 18.febrúar og byrjar kl.21.





Skrifa athugasemd