Sýnir myndir í Nýheimum frá fornleifauppgreftri á Bæ í Öræfum
Í kvöld kl. 20.00 verður Bjarni M. Einarsson fornleifafræðingur með myndasýningu í Nýheimum. Bjarni sýnir myndir frá fornleifauppgreftri á Bæ í Öræfum sem hófst fyrir þrem árum og segir frá þessum merku fornminjum. Bær fór undir vikur í Öræfajökulsgosi árið 1362 og fannst 1918. Björn Arnarson segir að líkur bendi til að húsið hafi fyllst á skammri stundu. Það er því spennandi verk framundan við uppgröftinn þar sem komið er að því að hreinsa frá veggjum innan frá og þar væri möguleiki á að finna eitthvað sem heimilinu tilheyrði. Fram að þessu hefur aðeins eitt brýni fundist, því var stungið í vegginn sem búið er að hreinsa. Ríkið veitir fimm miljónir kr. til rannsóknanna í Bæ á þessu ári.
Það verður án efa fróðlegt að sjá og heyra það sem Bjarni verður með í Nýheimum á morgun og því óhætt að hvetja fólk til að kynna sér söguna því margir munu skreppa í Öræfin í sumar til að fylgjast með uppgreftrinum og þá er ekki verra að vita dálítið um staðinn.




Skrifa athugasemd