Verklega kennslan fer fram í Dynjanda og á reiðvellinum við Stekkhól
Námskeið fyrir knapamerkjastig hefst í FAS 15.febrúar. Hanný Heiler hefur veg og vanda af námskeiðinu og segir hún að búið sé að skrá 20 nemendur á aldrinum 12-50 ára. Núna taka tvær stúlkur fjórða stigs nám sem er nú í fyrsta sinn kennt hér. Fjórða stigið er aðeins kennt á tveim stöðum á landinu, hér á Hornafirði og Sauðárkróki. Námskeiðið skiptist í verklegt- og bóknám. Verklega kennslan fer fram bæði í Dynjanda, heima hjá Hanný, og á reiðvellinum við Stekkhól, bóknámið fer fram í Framhaldsskólanum í Nýheimum. Nemendur 2 3.og 4. stigs þurfa að hafa hesta til umráða en nokkuð hefur verið um að erfitt væri að fá hesta sem hentuðu vel fyrir námið.Verknámið er alveg háð veðrum og vindum þannig að erfitt getur verið að halda reglulegri stundaskrá en það stendur allt til bóta þegar nýja reiðhöllin verður komin við Stekkhól þá gjörbreytist öll aðstaða.
Hanný segir að seinna í vetur verði nýtt námsefni fyrir knapa tekið upp í Hólaskóla og því sé þetta síðasti veturinn sem núverandi námsefni sé notað. Nýja námsefnið verður mikið erfiðara nám og meira efni tekið fyrir sem tekur 4-5 ár að ljúka en veitir um leið fleiri einingar. Báðar stúlkurnar sem eru að fara í fjórða stigið núna stefna á að fara í Hólaskóla og halda áfram hesta-náminu.
Hanný hefur boðið hestaeigendum upp á þá þjónustu að taka hesta í pössun og umhirðu og hafa nokkrir nýtt sér það. Sé hestur hafður á húsi er mánaðargjald fyrir hann kr. 8000 og þá getur eigandinn komið þegar honum hentar og farið í reiðtúr. Einnig er hægt að hafa hestinn í hagagöngu og þá er mánaðargjald kr.3000. Hanný segir að kostnaður við að eiga hest, þegar þurfi að kaupa alla þjónustu fyrir hann, muni vera um 60-70 þúsund kr á ári.





Skrifa athugasemd