Febrúar

Ungverskir nemendur heimsakja FAS

Kynning á verkefninu Water and Fire í Nýheimum - 28.02.2006 Febrúar

Í gærkvöldi var boðið til myndasýningar og kynningar í Nýheimum á verkefninu Water and Fire sem er samstarfsverkefni nemenda frá Ungverjalandi og nemenda í Framhaldsskóla Austur- Skaftafellssýslu. Þar kynntu Ungverjarnir land sitt og þjóð í máli og myndum. Sagt var frá tilurð þessa verkefnis og sýndar myndir frá Ungverjalandi og frá ferð nemenda Fas sem heimsóttu Ungverjana í fyrra og hvernig þeir kynntu landið sitt. Hjördís Skírnisdóttir kennari í Framhaldsskólanum er umsjónarmaður þessa verkefnis. Lesa meira
 
Verbúðargleði 2006

Um hundrað manns mættu á Verbúðargleðina - 27.02.2006 Febrúar

Fyrir nokkrum vikum sögðum við frá því að til stæði að þeir sem stunduðu verbúðarlífið hér á árum áður ætluðu að hittast á Fjörukránni í Hafnarfirði til þess að rifja upp þá gömlu og góðu tíma. þessi viðburður varð að veruleika um síðustu helgi og var haldið undir nafninu "Verbúðargleðin 2006". AÐ sögn Andrésar Kolbeinssonar þá heppnaðist gleðin eins og best var á kosið í hvívetna. Fólk byrjaði að streyma að strax kl. 21.00 og komu menn víðsvegar að frá svo sem Ísafirði, Vestmannaeyjum og Húsavík svo einhverjir staðir séu nefndir. Það urðu miklir fagnaðarfundir enda höfðu flestir ekki hist í fleiri tuga ára og því mikið til að tala um. Þegar gerð var talning á manskapnum um miðnætti var það staðfest að um eitthundrað manns væru mættir. Lesa meira
 
Laufgud-tre-22.02.06a.jpg

Vangaveltur um veðurfar í janúar nú og áður - 24.02.2006 Febrúar

Það er yndislegt að fylgjast með því á vorin þegar tré og runnar eru að laufgast en þegar það byrjar um miðjan febrúar þá er ekki sama ánægjan ríkjandi því ólíklegt er að ekki komi vetrarveður með frosti og hvassviðrum á næstu vikum. Til að geta borið síðastliðinn janúar saman við janúarmánuð undanfarinna ára fékk vefurinn miklar og góðar upplýsingar hjá Guðrúnu Gísladóttur landfræðingi á Veðurstofu Íslands og kemur hér smásamantekt úr þeim yfir úrkomu í janúar á veðurathugunarstöðum hér í sýslunni. Ekki er hér gerður greinarmunur á úrkomu hvort hún er snjór eða vatn. Þegar skoðaður er meðalhiti í janúar árin 1996-2005 kemur í ljós að aðeins tvö ár var hitinn í mínus þ.e. 2005 með -0,3° og 2004 með -0,1° og mesti meðalhiti í janúar var 3,1 árið 1996. Lesa meira
 
Samfesball

Samfésferð og söngvakeppni - 24.02.2006 Febrúar

Hin árlega Samféshátíð (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Mosfellsbæ við Varmá helgina 3.og 4. mars nk. Þarna hittast ungmenni víða af að landinu og skemmta sér saman eina helgi. Að venju gengst félagsmiðstöðin Þrykkjan fyrir ferð á hátíðina. 10. bekkingum er gefinn kostur á að fara á hátíðina sem hefst með stórballi á föstudagskvöldið 3.mars þar sem flestar vinsælustu unglingahljómsveitir landsins koma fram á tveimur sviðum. Á laugardaginn verður síðan billjardmót og söngvarakeppni SAMFÉS. Ráðgert er að koma heim aðfararnótt sunnudagsins. Unglingarnir gista í félagsmiðstöðinni Verinu í Hafnarfirði eins og þeir hafa gert undanfarið. Til að afla fjár í ferðina ætla unglingarnir að synda áheitasund í sundlauginni sem hefst í dag og lýkur um hádegi á morgun. Þau ætla að synda sem nemur c.a.vegalengdinni út að Flatey á Mýrum. Lesa meira
 
Kvennakórsárshátíð

Árshátíðaræfingarnar mjög magnþrungnar og mikilfenglegar - 24.02.2006 Febrúar

Nú glaðnar eftirminnilega yfir Hornafirði því nú annað kvöld þ.e. laugardagskvöldið 25. febrúar er árshátíð Kvennakórs Hornafjarðar. Þessar fræknu söngsystur eru búnar að vera við stífar æfingar og er árangurinn eftir því góður. Þær eru að æfa mörg mjög skemmtileg lög sem krefjast mikils aga. Ragnheiður Rafnsdóttir upplýsingafulltrúi kvennakórsins hafði samband við vefinn og sagði að konur úr Alt röddinni sem hún ræddi við í gærkvöldi hafi verið mjög sveittar en sælar, enda árshátíðaræfingarnar mjög magnþrungnar og mikilfenglegar. Til marks um hamaganginn, þykir það mildi að ekki hafa orðið slys á fólki. Konurnar gaspra um það sín á milli að þótt boð kæmu frá Hollywood þá þætti þeim það ekki mikið en það er nú önnur saga. Húsið opnar kl. 19.30 fyrir matargesti og verður boðið upp á fordrykk að hætti Kvennakórsins (mjög sterkur), eftir fordrykknum fylgja ljúfar veitingar að hætti mannsins hennar Lísu í Altröddinni. Lesa meira
 
Halldór Sævar og Crista

Ætla að breyta Hvannabraut 3-5 í gistiheimili - 23.02.2006 Febrúar

Tvö tilboð bárust á húsin á Hvannabraut 3-5 þar sem dvalarheimilið Skjólgarður hefur verið starfrækt og var tilboði Ránarslóðar ehf. tekið. Húsið er 667 fermetrar og var upphaflega tvö viðlagasjóðshús sem breytt var í dvalarheimili fyrir aldraðra og tengibygging sett milli húsanna. Eigandi Ránarslóðar ehf. er Halldór Sævar Birgisson og fjölskylda sem reka Gistiheimilið Hvamm. Halldór fær húsið við Hvannabrautina afhent 15. mars og þá verður hafist handa við að breyta því í gistiheimili og vonast hann til að allt verði tilbúið þar fyrir sumarið. Gert er ráð fyrir að þar verði 18 gistiherbergi sem er góð viðbót við þau 15 sem eru í Hvamminum. Rétt er að geta þess að Gistiheimilið Hvammur þykir einkar þægilegt, ódýrt, vistlegt og þjónusta góð. Lesa meira
 
Grænmetisnámskeið

Halda grænmetisnámskeið fyrir Hornfirðinga - 22.02.2006 Febrúar

Nú á tímum er mikið rætt um hollt mataræði og að við þurfum að vera meðvituð um hvað við setjum ofan í okkur. Það er hver sjónvarpsþátturinn á færur öðrum sem reynir að kenna okkur hvað má betur fara við val á því sem við borðum og hvernig við matreiðum það. En ekkert er betra en að læra það af fyrstu hendi og því hafa Kristján Guðnason kokkur og Hrafnhildur Magnúsdóttir tekið saman höndum og útbúið námskeið þar sem kennt verður að búa til góða grænmetisrétti. Að sögn Kristjáns þá hentar þetta námskeið bæði þeim sem eru að feta sig áfram í gerð grænmetisrétta og þeim sem eru lengra komnir í þeirri tegund matseldar. Námskeiðið fer fram heima hjá Hrafnhildi næst komandi mánudagskvöld og eru það 10 manns sem komast að á námskeiðinu. Lesa meira
 
Bæjarstjórn 2002 til 2006

Flokkarnir farnir að skoða, skrá og skipuleggja - 22.02.2006 Febrúar

Undirbúningur fyrir sveitarstjórnakosningarnar er hafin og Hornfirskir stjórnmálamenn farnir að skoða, skrá og skipuleggja. Björn Sigfinnsson formaður framsóknarflokksins segir að þar sé unnið að uppstillingu á lista og ekkert prófkjör á dagskrá. Við erum búnir að fá fólk, bæði konur og karla á listann en það er ekki komin nein dagsetning á hvenær hann verður birtur, allavega ekki fyrr en einhvern tíma í mars. Sjálfstæðismenn auglýstu eftir fólki sem hefði áhuga á að taka þátt í sveitarstjórnarmálum fyrir flokkinn og sagði Snorri Aðalsteinsson formaður sjálfstæðismanna að viðbrögð hefðu verið nokkuð góð. Við erum búnir að fá nægjanlega marga og búið er að kynna um tíu manns fyrir trúnaðarmannaráði. Þetta er ungt kjaftfort fólk sem hefur skoðun og þorir að segja álit sitt. Við verðum með prófkjör en ekki er endanlega búið að ákveða hvenær og það er nokkuð jafnt á milli kynja, góð uppröðun miðað við það sem hefur verið. Lesa meira
 
Tóft gamla hesthússins

Úthlutað styrk til uppbyggingar á gamla hesthúsinu í Bölta - 21.02.2006 Febrúar

Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað styrk til uppbyggingar á gamla hesthúsinu í Bölta í Skaftafellsþjóðgarði. Búið er að hreinsa hesthústóftina, hlaða veggi hennar og undirbúa fyrir lokaáfanga verksins segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Byrjað verður á verkinu 25.júní í sumar og til vinnu við það fáum við nokkra sjálfboðaliða frá Englandi, einnig hefur Ari Jóhannsson, sem er sérfræðingur í hleðslu úr torfi og grjóti verið ráðinn til verksins en hann hlóð upp veggina sem komnir eru í tóftinni. Í maí koma nokkrir evrópskir sjálfboðaliðar á vegum EFTA og er það samkvæmt beiðni frá bandalaginu og greiðir það með þeim þ.e. ferðir og fæði en við sjáum þeim fyrir gistingu,segir Ragnar. Lesa meira
 
Hópreið um svæðið

Góð mæting hjá hestamönnum á vetrarleikana um helgina - 20.02.2006 Febrúar

Hestamannafélagið Hornfirðingur var með fyrstu vetrarleika sína á þessu ári í gær og tókust leikarnir eins og best varð á kosið sagði Kjartan Hreinsson formaður félagsins. Þarna var góð mæting hjá hestamönnum, góðir hestar og fjöldi manns að fylgjast með. Þetta var svona óhefðbundið mót mest til að koma mönnum og hestum á stað. Keppt var í öllum flokkum og verðlaun veitt og á eftir voru nýbakaðar vöfflur og kaffi í Stekkhól. Næstu vetrarleikar verða 19.mars og aðalfundur hestamannafélagsins Hornfirðings verður haldinn næstkomandi fimmtudag í Stekkhól.Um 140 manns er í hestamannafélaginu sem er næst stærsta félagið innan ÚSÚ. Laugardaginn 25.febrúar n.k. verður Ístölt Austurland á Egilsstöðum sem hestamannafélagið Freyfaxi stendur fyrir og þar er öllum hestamannafélögun heimil þátttaka. Kjartan á von á að 5-6 Hornfirskir hestamenn fari þangað með gæðinga sína og taki þátt í keppni og þeim sem leita vilja frekari upplýsinga skal bent á að hafa samband við Berg Hallgrímsson formann Freyfaxa í síma 864-6420. Lesa meira
 
Korafing_hja_Altinni_003

Mikil spenna er farin að gera vart við sig - 20.02.2006 Febrúar

Kvöldið stóra nálgast nú óðfluga og má með sanni segja að mikil spenna sé farin að gera vart við sig. Undirbúningsnefnd æfir stíft þessa dagana og er það ekki ofsögum sagt að þær konurnar í altröddinni fari hamförum svo rosaleg læti eru á æfingum. Heyrst hefur að stofan hjá Ágústínu, sem er er ein af altröddinni, sé öll á tjá og tundri og varla nokkur hlutur heill þar inni - já og karlinn hennar hann Jón farinn til Reykjavíkur. Samkvæmt samtali við upplýsingafulltrúa kvennakórsins Ragnheiði Rafnsdóttur þá er það ósk kvennakórskvenna að sem flestir mæti á þessa einstöku árshátíð hjá kvennakórnum. Lesa meira
 
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)

Nýr starfsmaður í Þjóðgarðinum í Skaftafelli - 17.02.2006 Febrúar

Hafdís Roysdóttir í Svínafelli, hóf störf í Þjóðgarðinum í Skaftafelli um áramótin. Hafdís sér aðallega um fræðslumál þjóðgarðsins og er núna að vinna að gerð bæklinga fyrir Ingólfshöfða og einnig erum við að vinna í gönguleiðakorti fyrir Öræfasveit segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Gönguleiðakortið nær yfir Öræfasveit og austur að Jökulsárlóni og núna erum við að fá athugasemdir og upplýsingar um örnefni sem við munum svo bera undir landeigendur og fá samþykki þeirra. Helga David,starfsmaður þjóðgarðsins með aðstöðu í Nýheimum, er að vinna að samskonar korti fyrir Lónið og Rannveig Einarsdóttir er langt komin með að kortleggja gönguleiðir á Mýrum. Þegar eru komin út gönguleiðakort fyrir Nes og Suðursveit og gangi allt samkvæmt áætlun verða þau kort sem eru í vinnslu tilbúin fyrir sumarið og þar með komin gönguleiðakort fyrir alla sýsluna. Lesa meira
 

Fauk útaf veginum við Lómagnúp í gærkvöldi - 16.02.2006 Febrúar

Bíll með tengivagni fauk útaf veginum við Lómagnúp í gærkvöldi. Ökumann, sem var ungverskur, sakaði ekki en bíllinn er stórskemmdur. Vegfarendur á austurleið sáu bílinn utan vegar en engan mann,enda ekki farandi út úr bíl, og þeir höfðu samband við Neyðarlínuna frá Freysnesi. Lögreglan á Kirkjubæjarklaustri fór á staðinn og fann manninn sem þá hafði hafst við í bílnum í þrjár klst. Ekkert símasamband er á þessum slóðum svo sem víða á hringveginum þannig að maðurinn gat ekki kallað á aðstoð og engin umferð fyrr en veður fór aðeins að lægja en vindur fór í 49 m þegar hvassast var. Lögreglan á Kirkjubæjarklaustri vissi ekki um önnur óhöpp, sagði að margir hafi beðið í Vík meðan vesta veðrið gekk yfir og fjöldi fólks gisti í Freysnesi. Lesa meira
 

Námskeið fyrir aðstandendur og áhugafólk um geðheilbrigðismál - 16.02.2006 Febrúar

Föstudaginn 24. febrúar og laugardaginn 25. febrúar n.k. verður haldið hér á Höfn námskeið fyrir aðstandendur og áhugafólk um geðheilbrigðismál. Á námskeiðinu mun Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur fjalla um geðraskanir, heilsueflingu, andlega og líkamlega heilsurækt, Margrét Ómarsdóttir foreldri mun fjalla um andstreymi og baráttu, Sr. Vigfús Bjarni Albertsson fjallar um meðvirkni og sjálfsvirðingu, sorg-áfall og úrvinnslu, Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur fjallar um meðvirkni innan fjölskyldunnar og hvað er til ráða, einnig heldur hún fyrirlestur seinni daginn um lífshjólið. Arndís Ósk Jónsdóttir frá Geðhjálp mun fjalla um stuðningshópa aðstandenda. Á námskeiðinu verða einnig umræðuhópar. Lesa meira
 
Björgvin Óskar Sigurjónsson

Björgvin Óskar hlýtur viðurkenningu Tæknifræðingafélags Íslands - 15.02.2006 Febrúar

Þann 14.janúar sl. útskrifaðist ungur Öræfingur, Björgvin Óskar Sigurjónsson á Litla-Hofi frá Háskólanum í Reykjavík sem byggingatæknifræðingur B.Sc.af burðarvirkjasviði. Við útskriftina var honum veitt viðurkenning frá Tæknifræðingafélagi Íslands fyrir ,, sérlega vel unnið og áhugavert lokaverkefni við brautskráningu frá Háskólanum í Reykjavík’’ eins og stendur á viðurkenningunni undirritaðri af Einari Jónssyni formanni Tæknifræðingafélags Íslands. Björgvin var að vonum hamingjusamur með viðurkenninguna og þennan stóra áfanga og sagði að sér væri það mikill heiður að fá viðurkenningu frá þessum aðilum þar sem þeir eru beintengdir atvinnugeiranum. Með þessari viðurkenningu sá maður einnig að öll vinnan sem búið er að inna af hendi við verkefnið hafði borgað sig. Lesa meira
 
Sólsetur við Suðurfjörur

Margar góðar tillögur komnar í vaxtasamninginn - 14.02.2006 Febrúar

Það er aðeins að koma mynd á þetta núna , sagði Gísli Már Vilhjálmsson þegar hann var spurður um hvernig gengi með undirbúning við vaxtasamninginn. Vinnan er vel á veg komin og það er komið mikið af góðum tillögum sem verið er að vinna úr og þær eru það sem allt byggist á til að við náum þessum samningi við ríkisvaldið. Þeim mun fleiri góðar hugmyndir sem koma, þeim mun betri vaxtasamningi náum við því þetta eru ekki neinir peningar sem koma svífandi á silfurfati til okkar. Akkúrat þessa dagana er verið að vinna að SVÓT greiningu, en þetta nafn stendur fyrir ; styrkur, veikleiki, ógnun og tækifæri. Ég vil hvetja sem flesta til að koma til máls við okkur ef þeir hefur einhverja hugmynd, ekki endilega nýja hugmynd heldur eitthvað til málanna að leggja, endilega komið til okkar segir Gísli. Lesa meira
 
bjorgunarskip_3

Sótti slasaðan skipverja um borð í Vilhelm Þorsteinsson - 13.02.2006 Febrúar

Björgunarskipið Ingibjörg á Hornafirði sótti í morgun slasaðan skipverja um borð í Vilhelm Þorsteinsson frá Akureyri og fór með hann til Hafnar þar sem hann fékk góða aðhlynningu á heilsugæslustöðinni. Þetta er önnur ferð okkar til að sækja slasaðan mann um borð í skip sagði Sigurður Guðmundsson skipstjóri og þetta gekk ljómandi vel. Það var mun verra í sjóinn í þessari ferð en áður, ölduhæð var 3,3 m þegar komið var út og 4,1 þegar við komum til baka en við fengum ekki brot á okkur, náðum að keyra eftir því og skipið er svo snöggt að það náðist að sneiða milli brotanna. Vel gekk að koma slasaða manninum um borð í Ingibjörgu og var honum slakað niður í krana. Ferðin í heild tók 1,15 klst. og sagði Sigurður útkallstíma, þar til lagt var frá bryggju, hafi verið 10 mínútur. Lesa meira
 
Vid_Vadid_a_Jokulsa_a_Dal

Ætla að halda Þorrablót sitt í Snæfelli - 13.02.2006 Febrúar

Næsta föstudag halda félagar í Hornafjarðar-klúbbnum 4x4 þorrablót sitt í Snæfelli. Farið verður í tveim hópum, sá fyrri leggur af stað um hádegi á föstudaginn og seinni hópurinn um kl. 18. Þorkell Kolbeins sagði að ekki væri ákveðið hvaða leið yrði valin fyrir fyrri hópinn sem er á vel útbúnum jeppum , það réðist af færð og veðri hvort farið verður héðan upp á jökul og yfir jökulinn í Snæfell eða ekið upp á Öxi og yfir Eyjabakka í Snæfell sem er ca. 5 tíma ferð frá veginum af há Öxi. Þeir sem fara kl.18 fara þjóðveginn austur og um Fljótsdalsheiði og þeir þurfa ekki að vera á sérútbúnum bílum. Gist verður í Snæfellsskálanum og á laugardaginn verður farið í skoðunarferð um nágrennið. Um kvöldið verður þorra blótað og er þorramaturinn fenginn frá Egilsstöðum. Það er ekki lagt upp með neina sér skemmtidagskrá heldur verða allir sem þarna verða að sjá sameiginlega um að vera skemmtilegir og hafa húmorinn í góðu lagi. Á sunnudaginn heldur hópurinn heim og ræðst þá hvaða leið verður farin og hvenær. Lesa meira
 
112 dagurinn

112 dagurinn á Höfn laugardaginn 11.2 - 10.02.2006 Febrúar

Það verður mikið um að vera hjá viðbragðsaðilum hér á Höfn á morgun laugardaginn 11. febrúar en þá verður haldinn í annað skipti á landsvísu 112 (einn, einn tveir) daginn. Opið hús verður hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar og Slysavarnardeildinni Framtíðinni í Björgunarsveitarhúsinu við Álaugarveg, hjá Rauðakrossdeild Hornafjarðar við Hafnarbraut og Slökkvilið Hornafjarðar mun kynna starfsemi sína í Slökkvistöðinni við Álaleiru. Þar munu verða kveikt bál og gestum verður boðið upp á að beita slökkvitækjum og eldvarnarteppum til að ráða niðurlögum eldsins. Hægt er að heimsækja staðina frá kl. 13-16 og um að gera að kynna sér starfsemi félaganna og skoða húsnæði og búnað þeirra. Að sjálfsögðu er boðið upp á kaffi á staðnum. Lesa meira
 
Horft til fjalla

Boðið verður upp á tvær Nordjobb stöður hér í sumar - 10.02.2006 Febrúar

Frá og með 2. janúar síðastliðnum var hægt að byrja að sækja um Nordjobb fyrir sumarið 2006. Á aðeins tveimur vikum hefur áhuginn verið gífurlegur og heimasíða verkefnisins verið mikið skoðuð. Alls hafa borist tæplega tvö þúsund umsóknir frá ungmennum í leit að ævintýrum á þessum stutta tíma. Nordjobb hefur starfað frá árinu 1985 og hafa um sextán þúsund ungmenni tekið þátt í verkefninu síðan þá. Á hverju ári fá um 7-800 Norðurlandabúar á aldrinum 18-28 ára starf gegnum verkefnið, sem fjármagnað er af norrænu ráðherranefndinni, en stýrt af Norrænu félögunum í einstökum löndum. Nordjobb er frábær möguleiki fyrir íslensk ungmenni að kynnast nágrannalöndunum og bæta kunnáttu í Norðurlandatungumálunum. Lesa meira
 
Hótel Skaftafell

Endurnýja allt inni í herbergjum í elstu álmu Hótels Skaftafells - 09.02.2006 Febrúar

Verið er að endurnýja allt inni í herbergjum í elstu álmu Hótels Skaftafells í Freysnesi sem tekin var í notkun fyrir 17 árum. Þetta eru átta herbergi þar sem skipt er um öll hreinlætistæki, hiti lagður í gólfin og parket sett á herbergisgólfin. Jón Benediktsson hótelstjóri segir að alltaf sé nóg að gera við að lagfæra og betur um bæta í hótelrekstrinum. Það lítur mjög vel út með sumarið og segja má að ferðatraffíkin byrji í mars en þá er von á mörgum hópum og eins er mikið pantað í apríl og maí. Búið er að ráða allt starfsfólk á hótelið fyrir sumarið og er um 80% þess fólk sem verið hefur hér hjá okkur áður, þetta er úrvalsstarfsfólk sem alltaf er hægt að treysta á. Lesa meira
 
Kvennakórskonur á fullu

Kvöldið verður spennuþrungið - 08.02.2006 Febrúar

Þá styttist í hina margrómuðu árshátíð Kvennakórs Hornafjarðar. Árshátíðin verður haldin á Hótel Höfn þann 25. febrúar og er óhætt að segja að kvöldið verður spennuþrungið. Stórhljómsveit Bjarts Loga spilar fyrir dansi og er von undirbúningsnefndar að vinir til sjávar og sveita sjái sér fært að mæta og eiga með kvennakórskonum drepfyndna og hrikalega skemmtilega stund. Að þessu sinni er það Alt röddin sem sér um árshátíðina og eru æfingar komnar vel á veg ásamt allri skipulagningu. Mjög mikil leynd er yfir öllu en nefndin getur þó gefið upp að maturinn verður yndislegur og margt á eftir að koma á óvart. |nl| Lesa meira
 
Um borð í Ásgrími Halldórssyni SF 250

Þokkalegur afli hjá línubátum undanfarið - 08.02.2006 Febrúar

Það hefur verið alveg þokkalegur afli hjá línubátum undanfarið sagði Ólafur Einarsson á Hafnarvoginni þegar vefurinn spurði hann frétta á hafnarsvæðinu. Loðnuskipin Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson eru bæði á veiðum og einhverjir af bátunum eru að fara á netaveiðar en Erlingur er eini báturinn sem verið hefur á netum. Um sl. helgi lestaði skip 1100 tonn af flokkaðri perlumöl sem fór til Færeyja. Lesa meira
 
Hönnunarkeppni véla- og verkfræðinema

Baldur sigraði í hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema - 07.02.2006 Febrúar

Véla- og iðnaðarverkfræðinemar við Háskóla Íslands halda hönnunarkeppni á hverju ári og að þessu sinni var keppnin með aðeins öðru sniði en venjulega þar sem þrautin var alfarið unnin í vatni. Sigurvegari í keppninni var Hornfirðingurinn Baldur Bjarnason (Jakobssonar) með tæki sitt SF Óskapnað, sem er tæki til að sækja golfkúlur út í vatn. SF Óskapnaður sem Baldur hannaði og smíðaði leysti þrautina með 25 stigum í fyrri atrennu og var með fullt hús stiga, 29 stig, í seinni umferð. Þetta óvenjulega heiti á tækinu segir Baldur vera að SF svo ljóst sé að heimahöfnin sé Hornafjörður og Óskapnaður vegna þess að honum fannst það hæfa útliti tækisins. Baldur hlaut í verðlaun HP Compaq fartölvu, dýrustu og bestu gerð, frá Opnum Kerfum einnig farandverðlaunagrip frá Marel ásamt bol merktum Marel. Það var Marel sem gaf verðlaun fyrir bestu hönnun og einnig frumlegustu hönnunina. Lesa meira
 
Álaugareyjarklettarnir á Höfn

Innviðir forns eldfjalls í hjarta bæjarins - 06.02.2006 Febrúar

Álaugareyjarklettarnir á Höfn eru merkilegir innviðir forns eldfjalls í hjarta bæjarins, segir Páll Þór Imsland jarðfræðingur í ítarlegri greinargerð sem hann hefur sent bæjarstjórn Hornafjarðar að beiðni Alberts Eymundssonar bæjarstjóra. Páll leggur til að Álaugareyjarklettarnir verði friðaðir og varðveittir í fræðslu-og sýningarskyni og að sveitarfélagið Hornafjörður taki það hlutverk upp á sína arma. Tildrög þessarar greinar var gönguferð þeirra Páls, Alberts og Helga M..Pálssonar bæjarverkfræðings sl. sumar meðfram Álaugareyjarklettunum þar sem Páll útskýrði fyrir þeim jarðfræðilega gerð þeirra og benti þeim á ýmis jarðfræðileg fyrirbæri og hvernig mætti hagnýta þessa kletta í þágu samfélagsins. Lesa meira
 
MMH 2005 afhending

Nemendur í FAS hlutu menningarverðlaun 2005 - 03.02.2006 Febrúar

Afhending menningarverðlauna á vegum Menningarmálanefndar Hornafjarðar fór fram í Nýheimum í gær að viðstöddu fjölmenni. Að þessu sinni hlutu nemendur Framhaldsskólans í Austur Skaftafellssýslu verðlaunin fyrir Unicef- tónleikana sem haldnir voru í íþróttahúsinu í haust og fyrir hina geysivinsælu uppfærslu á söngleiknum Superstar sem sýndur var í fyrra vetur og hlaut frábærar viðtökur. Það var Hermann Hansson formaður Menningarmálanefndar sem afhenti verðlaunin. Albert Eymundsson bæjarstjóri afhenti styrki til hinna ýmsu félagasamtaka. Umhverfisverðlaunin fyrir árið 2005 fékk Skinney-Þinganes. Lesa meira
 
Verbúðarlíf

Stefna til gleðskapar þeim sem stunduðu verbúðarlífið á Höfn - 02.02.2006 Febrúar

Vegna vaxandi fortíðarþrár hafa félagarnir Stebbi Sturla, Óli pípa og Drési dauði (Andrés Kolbeins) ákveðið að stefna til gleðskapar þeim saman sem bjuggu á verbúðunum Skakkanum og í Ásgarði á tímum verbúðarlífs (1975-1985). Tilgangur gleðskaparins er að rifja saman upp þá gömlu og góðu daga þegar verbúðarlífið stóð sem hæst. Þeir hornfirðingar og aðrir sem glöddu vertíðar- og farandverkafólkið með heimsóknum sínum á verbúðirnar hvattir til að mæta. Við erum að reyna að hafa upp á flestum sem voru með á þessum skemmtilegu árum, í minningunni allavega og viljum endilega að sem flestir mæti segir Andrés Kolbeinsson. Séu það einhverjir sem hafa óljósa minningu um að hafa stundað verbúðarlífið á þessum tíma, vita af einhverjum sem gerðu það eða þeir sem muna mjög vel eftir verbúðarlífinu geta haft samband við þá félaga til að sannreyna minninguna og fá nánari upplýsingar um gleðskapinn, Stebbi Sturla 862 0101, Óli pípa 820 1260 og Andrés Kolbeins 893 0011. Lesa meira
 
Bær í Öræfum

Sýnir myndir í Nýheimum frá fornleifauppgreftri á Bæ í Öræfum - 02.02.2006 Febrúar

Í kvöld kl. 20.00 verður Bjarni M. Einarsson fornleifafræðingur með myndasýningu í Nýheimum. Bjarni sýnir myndir frá fornleifauppgreftri á Bæ í Öræfum sem hófst fyrir þrem árum og segir frá þessum merku fornminjum. Bær fór undir vikur í Öræfajökulsgosi árið 1362 og fannst 1918. Björn Arnarson segir að líkur bendi til að húsið hafi fyllst á skammri stundu. Það er því spennandi verk framundan við uppgröftinn þar sem komið er að því að hreinsa frá veggjum innan frá og þar væri möguleiki á að finna eitthvað sem heimilinu tilheyrði. Fram að þessu hefur aðeins eitt brýni fundist, því var stungið í vegginn sem búið er að hreinsa. Ríkið veitir fimm miljónir kr. til rannsóknanna í Bæ á þessu ári. Lesa meira
 
Hanný með hesta sína

Verklega kennslan fer fram í Dynjanda og á reiðvellinum við Stekkhól - 01.02.2006 Febrúar

Námskeið fyrir knapamerkjastig hefst í FAS 15.febrúar. Hanný Heiler hefur veg og vanda af námskeiðinu og segir hún að búið sé að skrá 20 nemendur á aldrinum 12-50 ára. Núna taka tvær stúlkur fjórða stigs nám sem er nú í fyrsta sinn kennt hér. Fjórða stigið er aðeins kennt á tveim stöðum á landinu, hér á Hornafirði og Sauðárkróki. Námskeiðið skiptist í verklegt- og bóknám. Verklega kennslan fer fram bæði í Dynjanda, heima hjá Hanný, og á reiðvellinum við Stekkhól, bóknámið fer fram í Framhaldsskólanum í Nýheimum. Nemendur 2 3.og 4. stigs þurfa að hafa hesta til umráða en nokkuð hefur verið um að erfitt væri að fá hesta sem hentuðu vel fyrir námið.Verknámið er alveg háð veðrum og vindum þannig að erfitt getur verið að halda reglulegri stundaskrá en það stendur allt til bóta þegar nýja reiðhöllin verður komin við Stekkhól þá gjörbreytist öll aðstaða. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica