Janúar
Björn Lóðs
Björn Lóðs
Á innsiglingu inn Reyðarfjörð (mynd:Vignir)
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

31.01.2006 Janúar

Björn Lóðs aðstoðar skip við að leggjast að bryggju á Reyðarfirði

Lóðsbáturinn Björn Lóðs er ekki bara notaður til að aðstoð skip sem þurfa að fara um innsiglinguna í Hornafjarðarósi, 1. des. sl. fór lóðsbáturinn frá Hornafirði til Reyðarfjarðar til að aðstoða kínverska skipið Da Fu við að leggjast að nýju álversbryggjunni á Reyðarfirði. Da Fu er 14000 tonn, 153 metra langt og 23 metra breitt. Lámarksdjúprista skipsins er um 9,5 metrar. Skipið kom beint frá Kína og var farmurinn stálgrind í kerskála álversins. Sigling Da Fu tók 35 daga frá Kína til Reyðafjarðar. Björn Lóðs var um 9. klst. að sigla frá Höfn til Reyðafjarðar og jafn lengi til baka.

Vel gekk að koma skipinu upp að bryggju þrátt fyrir stærð og þyngd þess. Vinnan við skipið tók um þrjár klukkustundir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica