Janúar
Kiwanis_IMG_6939
Kiwanis_IMG_6939
Á myndinni þakka Guðrún Júlía og Ragnhildur Kiwanismönnum fyrir góða gjöf

27.01.2006 Janúar

Kiwanisklúbburinn Ós styrkir röntgenmyndavélkaupin

Kiwanisklúbburinn Ós á Hornafirði afhenti í dag kr. 150.000 til kaupa á röntgenmyndavél fyrir heilsugæslustöðina. Það voru kiwanisfélagarnir Geir Þorsteinsson og Miralem Haseta sem afhentu þeim Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra og Ragnhildi Magnúsdóttur héraðslækni gjöfina. Enn vantar um þrjár milljónir kr. til að fjármagna kaupin á myndavélinni en Guðrún Júlía og Ragnhildur eru vongóðar um að fleiri ,,leggi hér hönd á plóginn" og það takist að fá þessi nauðsynlegu tæki fyrir sumarið. Munum að margt smátt gerir eitt stórt og það safnast þegar saman kemur.

Við erum þannig staðsett á landinu að við þurfum að vera með vel útbúna heilsugæslustöð og það eru á fimmta hundrað km. í næsta sjúkrahús.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica