Janúar
Kaffi Hornið
Kaffi Hornið
Viktor Ragnar Þorvaldsson namandi í FAS og starfsmaður Kaffi Hornsins "á Internetinu"

27.01.2006 Janúar

Internetaðgangur fyrir gesti Kaffi Hornsins

Kaffi Hornið hefur nú sett upp internetaðgang þar sem gestir hafa möguleik á að tengjast internetinu á meðan að þeir njóta veitinga. Að sögn Ingólfs Einarssonar þá hefur verið mikið spurt um þessa þjónustu og því ákvað hann að ríða á vaðið. Þessi þjónusta er viðskiptavinum Kaffi Hornsins að kostnaðarlausu. Í janúar hefur Kaffi Hornið verið með tilboð í hádeginu, tveir fyrir einn og segir Ingólfur að það hafi slegið öll met. Hjá fyrirtækinu vinna núna 5 starfsmenn og í vetur hefur verið opið alla daga nema sunnudag frá kl. 11:40 til 22:00 og á laugardagskvöldum til 01. Grunnskólakrakkar mæta í mat kl.11 og eru til hádegis en Kaffi Hornið hefur séð um mat fyrir grunnskólana á Höfn síðustu ár.

Ingólfur segir að nýr matseðill muni líta dagsins ljós um mánaðarmótin og segist hann vera mjög bjartsýnn á sumarið og á hann von á því að það verði ekki minn en á síðasta ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica