Jón Halldór keypti skartgripaverslun í Hafnarfirði
Gullsmiðurinn og Hornfirðingurinn Jón Halldór Bjarnason keypti í haust skartgripaverslun á Strandgötu 37 í Hafnarfirði þar sem hann verslar nú með skartgripi, úr og auðvitað sína vinsælu sérsmíðuð skartgripi. Þetta er allt annað líf að vera kominn með sína eigin verslun sagði Jón Halldór, þegar vefurinn hafði samband við hann nýlega, ég er hér á góðum stað í bænum og er með verkstæðispláss þar líka. Það er alltaf mikið að gera í trúlofunarhringa sölunni og þá er ég að senda út um allt land og fyrir þá sem eru að spá í að trúlofa sig og kaupa hringa eru allar upplýsingar inn á vefsíðunni gunnimagg.is. Jón Halldór er bæði með gull- og silfur sett á íslenska þjóðbúninginn en víravirki er hann ekki með en getur látið smíða það. Hornfirðingar hafa átt mikil viðskipti við Jón Halldór gegnum árin og segir hann ekki vera neina breytingu þar á.
Jón Halldór segir að mikið hafi verið að gera í versluninni fyrir jólin og þá hafi hann notið góðrar aðstoðar fjölskyldunnar þegar mest var að gera og hann hefur góðar vonir með að fá konuna sína hana Betu til liðs við sig en hún vinnur í Fjarðarkaupum.
Ég vona að sem flestir Hornfirðingar líti við hérna á Strandgötunni hjá mér sagði Jón Halldór í lokin og við sendum honum og fjölskyldunni bestu hamingjuóskir með nýja fyrirtækið.





Skrifa athugasemd