Janúar
Slökkviliðsvaktin síðustu helgi
Slökkviliðsvaktin síðustu helgi
Hluti af Slökkviliði Hornafjarðar (úr myndasafni)

25.01.2006 Janúar

Níu braunaútköll á síðasta ári hjá Slökkviliði Hornafjarðar

Slökkvilið Hornafjarðar var níu sinnum kallað út vegna bruna á síðasta ári, mest varð tjón í hænsnabúinu á Grænahrauni um miðjan des. en minni háttar tjón í öðrum útköllum. Ekkert útkall varð vegna umferðarslyss þar sem þörf væri á björgunarklippum. Í stórflóðinu á Höfn og í Nesjum þann 15.okt. unnu slökkviliðsmenn við að dæla vatni með öllum þeim dælubúnaði sem til var og stóð sú vinna í rúman sólarhring. Steinþór Hafsteinsson slökkvistjóri segir að óvenju lítið hafi verið um sinubruna á árinu, það helsta var þegar sinueldur barst í útihús á Svínhólum í Lóni en tjón varð óverulegt. Steinþór segir að reglulegar æfingar hjá slökkviliðinu séu um 10 á ári auk þess sem starfsmenn Brunsmálastofnunar koma 1-2 á ári og halda æfingu eða eru með námskeið. Í Öræfum gegnir björgunarsveitin Kári starfi slökkviliðs ásamt slökkviliði Hornafjarðar og þar eru 15 manns til staðar komi til útkalls, varðstjóri þar er Gunnar Sigurjónsson á Hofi. Slökkvi- og björgunarsveitin í Öræfum er með einn tankbíll með 15 tonnum af vatni og lausri dælu, einnig hefur hún björgunarklippur.

Steinþór segir slökkviliðsmenn búna að halda smá æfingu í Almannaskarðsgöngunum og skoða aðstæður þar komi til útkalls vegna elds í göngunum. Búið er að koma á talstöðvarsambandi í göngunum en þar er ekkert GSM samband.
Eitt að árvissum verkefnum slökkviliðsmanna er að heimsækja þriðja bekk Nesjaskóla fyrir jólin, tala við krakkana og sýna þeim hvaða öryggistæki þurfa að vera til heima hjá þeim o.m.fl. og segir Steinþór að sú fræðsla skili sér einstaklega vel og þau litlu sjái oft til þess að foreldrarnir kaupi reykskynjara og slökkvitæki þar sem það vanti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica