Janúar
Málfundur_Öryggi_IMG_6932
Málfundur_Öryggi_IMG_6932
Erindi Gísla Viggóssonar þótti mjög áhugavert
Mynd 1 af 2
1 2

20.01.2006 Janúar

Erindi Gísla Viggóssonar hjá Siglingastofnun athyglisverðast

Milli 60-70 manns mættu á málfund um öryggi sjómanna sem haldinn var í fundarsal Nýheima á Höfn sl. miðvikudagskvöld. Vefurinn hafði samband við tvo heimamenn þá Sigurð Ólafsson og Ólaf Einarsson sem báðir voru á fundinum og sögðu þeir að almenn ánægja hefði verið með fundinn, þau erindi og þann fróðleik sem þar kom fram. Persónulega fannst mér erindi Gísla Viggóssonar hjá Siglingastofnun athyglisverðast sagði Sigurður, Gísli ræddi um upplýsingamiðlun til sjómanna og sagði frá nýrri heimasíðu sem þeir eru að fara að opna. Á þessari nýju heimasíðu eru miklar endurbætur frá gömlu síðunni og lítur út fyrir að vera mjög aðgengileg með mýgrút af nytsamlegum upplýsingum fyrir sjófarendur. Ég held að þetta sé eitthvað sem við eigum eftir að njóta góðs af og allt voru þetta fróðleg og góð erindi sem þarna voru flutt.

Ólafur sagði að mestan áhuga hefði vakið hjá sér þær nýjungar sem nú væru tiltækar í tölvukerfinu þar sem hægt er að fá enn fullkomnari upplýsingar um ölduhæð og sjólag. Ætli t.d.trillukarl hér að fara á veiðar austur að Papey þá getur hann fengið ölduspána á því svæði sem hann fer um , ekki bara þar sem duflin eru heldur alveg yfir það svæði sem hann velur.

Sigurður flutti stutt erindi um öryggi og aðstöðu sjómanna á Hornafirði, aðstæður við ósinn og innsiglinguna í heild, til kynningar fyrir aðkomna fundarmenn. Einnig var Ingólfur Ásgrímsson með erindi um almenna aðkomu útgerðarmanna og áhafna skipa að öryggismálum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica