Janúar
Þorrablót Hornfirðinga 2005 Reykjavík
Þorrablót Hornfirðinga 2005 Reykjavík
Einar Sveinn Ingólfsson og Sturlaugur Þorsteinsson á Þorrablóti Hornfirðinga 2005 í Reykjavík (úr myndasafni).

19.01.2006 Janúar

Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu

Aðra helgi í þorra eða nánar tiltekið þann 28. janúar n.k verður haldið Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu. Blótið fer fram í Félagsheimili Seltjarnarnes. Heiðursgestir að þessu sinni eru Kristín Gests og Jóhann Morávek. Hornfirðingahljómsveitin Ungmennafélagið sem er skipuð þeim Gulla Sig., Bjarti Loga, Braga Kalla og Bjössa mun halda uppi fjörinu fram eftir nóttu. Miða er hægt að panta með því að senda tölvupóst á netfangið blotrvik@hornafjordur.is. Forsala aðgöngumiða verður miðvikudaginn 25. janúar á milli kl. 17 og 21 hjá Kristínu Björnsdóttur að Hringbraut 52, Hafnarfirði eða í síma 561-2747 einnig fimmtudaginn 26. janúar á milli kl. 17 og 21 hjá Elínu Ásgrímsdóttur að Vesturfold 54, Grafarvogi eða í síma 587-5067.

Í myndasafni á vefnum eru nú komnar inn myndir frá Þorrablótinu í fyrra sem var með eindæmum gott.
Sjá myndasafn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica