Janúar
Nest ráðstefna 2006
Nest ráðstefna 2006
Nest ráðstefna haldin í Nýheimum 2006

19.01.2006 Janúar

Sérlega vel heppnað NEST málþing á Höfn

Síðastliðinn fimmtudag var haldið málþing á vegum NEST verkefnisins hér á Höfn í Hornafirði, nánar tiltekið í Nýheimum. Þetta er annað málþing, sem haldið er á vegum NEST á Íslandi. Það fyrra var haldið að hótel Kirkjubæjarklaustri þann 21. júní 2005. Dagskrá málþingsins var bæði vönduð og fjölbreytt og var málþingið sérlega vel sótt, frá báðum sveitarfélögunum og komu málþingsgestir víða að af landinu. Það var einróma álit málþingsgesta að hér hefði verið á ferðinni einstaklega vel skipulagt og áhugavert málþing. Það helsta sem á skorti varðandi málþingið var, að ekki reyndist nægilegur tími til fyrirspurna og skoðanaskipta meðal gesta og fyrirlesara. Það er vert að hafa í huga fyrir NEST ráðstefnuna í haust. Á þessu fyrsta ári NEST verkefnisins hefur ótrúlega margt áunnist, sem síðast en ekki síst kemur vel í ljós og verður áþreifanlegt þegar aðilar koma saman á slíkum samkomum.

Þar mætti fyrst nefna þá miklu og einhuga samstöðu og áhuga ferðaþjónustuaðila, sveitarstjórna og ýmissa stofnana og rekstraraðila á svæðinu, sem er til þróunar innan NEST verkefnisins. Slíkur árangur næst ekki á einum degi og kemur ekki í ljós fyrr en verkefnið kemst almennilega á skrið. Þá hefur skapast góð samvinna milli NEST verkefnisins og ferðaþjónustuklasans hjá Frumkvöðlasetri Austurlands, þar sem nú þegar hafa skapast afurðir, sem verða senn tilbúnar til markaðssetningar.

Allir vinnuhóparnir innan verkefnisins eru nú vel virkir og eru að vinna að margs konar verkefnum, hver með sitt þema, og einnig er orðið virkt samstarf milli vinnuhópanna að ákveðnu marki. Þá hefur þátttakendum fjölgað í öllum vinnuhópunum undanfarið og er það merki um aukinn áhuga á þeirri starfsemi, sem þar fer fram. Þetta mun án efa verða verkefninu til mikils framdráttar og ánægjulegt að verða vitni að slíkum áhuga.

Miklar vonir eru bundnar við hugmyndasamkeppnina innan NEST og verður gaman að fylgjast með því, hver útkoman verður. Þar skapast auk þess gott tækifæri til þess að kynna verkefnið og svæðið sem þróað er, bæði hér og erlendis. Þá væntum við þess að samkeppnin muni skila hugmyndum að vörum og þjónustu sem yrðu atvinnuskapandi á svæðinu og muni auk þess hafa mikið minjagripa- og auglýsingagildi fyrir ferðaþjónustuna hér í ríki Vatnajökuls.

Hér höfum við, nánast á hlaðinu hjá okkur, þjóðgarð sem senn mun senn verða stærsti þjóðgarður í Evrópu, hvorki meira né minna, svo ekki sé minnst á stærsta jökul Evrópu. Því er geysilega mikilvægt að viðhalda og auka þá miklu samstöðu og þekkingu sem hér er fyrir hendi, til þess að vinna í sameiningu að þróun væntanlegs Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar gefur NEST verkefnið mikla möguleika, bæði varðandi þróun og markaðssetningu á sjálfbærri ferðaþjónustu og að auki einstakt tækifæri til sameiginlegrar markaðssetningar að hluta til með öðrum þjóðum í verkefninu sem eru að vinna að sömu markmiðum og við hér. Þau markmið felast fyrst og fremst í því, að nýta einstakar náttúruperlur, þjóðgarða og friðlýst svæði til tekjuöflunar í nútíð, en skila þeim að sama skapi óspjölluðum til komandi kynslóða. Því eru náttúruverndarsjónarmið, stjórnun ferðamennsku og rannsóknir á þolmörkum fyrir ágangi ferðafólks höfð að leiðarljósi, til þess að stuðla að og viðhalda sjálfbærri ferðaþjónustu.

Strax að málþinginu loknu var haldið yfir á Jöklasýninguna þar sem NEST hugmyndasamkeppni um "þjóðgarðsafurð" (Sjá pdf skjal) var formlega hleypt af stokkunum. Slík hugmyndasamkeppni fer fram samtímis meðal allra NEST þátttökulandanna, það er Íslands, Skotlands, Svíþjóðar og Finnlands. Finnar munu veita fyrstu verðlaun í hverju þátttökulandi að upphæð 2.500 evrur. Fyrirtæki innan sveitarfélags Hornafjarðar munu veita önnur verðlaun að upphæð kr. 80.000 og fyrirtæki í Skaftárhreppi veita þriðju verðlaun að upphæð kr. 40.000.

Um kvöldið var málþingsgestum boðið að taka þátt í sameiginlegum kvöldverði á hótel Höfn, gegn vægu gjaldi, og var samkoman vel sótt og skemmti fólk sér vel.

Á föstudeginum voru síðan haldnir vinnuhópsfundir allra NEST vinnuhópanna og einnig fundaði NEST stýrihópurinn á Íslandi. Að því loknu héldu NEST þátttakendur hver til síns heima og var ánægjulegt að sjá hversu mikill hugur er í fólki um að halda áfram af fullum krafti með starfsemina í NEST verkefninu. Þar á grasrótin ekki hvað síst heiður skilið fyrir frábæra atorku og vilja til samstarfs, við að byggja upp ímynd svæðisins og efla hér og auka ferðaþjónustuna, meðal annars með fyrirhuguðum vetrarpakkaferðum í ríki Vatnajökuls.

Næsta stórverkefni innan NEST verður að halda fjölþjóðlega ráðstefnu í ríki Vatnajökuls, með þátttöku allra NEST landanna og annarra, sem áhuga hefðu að sækja þá ráðstefnu. Þar mun ráða ríkjum þemað "stofnun Náttúrulífsskóla" á svæðinu, en það er einmitt þema Íslands innan NEST. Með þessari ráðstefnu skapast einstakt tækifæri til þess að vekja athygli á ríki Vatnajökuls og þeim sveitarfélögum og ferðaþjónustuaðilum sem þar starfa ötullega að uppbyggingu sjálfbærrar og fjölbreyttrar ferðaþjónustu í og við stækkaðan Skaftafellsþjóðgarð og í framtíðinni Vatnajökulsþjóðgarð.

Að lokum, þá vil ég fyrir hönd Háskólasetursins á Hornafirði og Háskóla Íslands, sem leiðir NEST verkefnið, þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn við að gera málþingið að veruleika. Sérstakar þakkir til hinna fjölmörgu, sem fluttu erindi á málþinginu, til fundarstjóra, og síðast en ekki síst til málþingsgestanna, sem margir lögðu á sig langa ferð til þess að taka þátt í þessu með okkur.

Stella Sigfúsdóttir
Verkefnisstjóri NEST

Háskólasetrinu á Hornafirði/HÁ-HORNi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica