Æfingar á fullu fyrir þorrablót á Höfn
Helga Bogga leikstjóri þorrablótsnefndar sagði í viðtali við vefinn að æfingar gengu vel og að allt væri að smella saman, eina alvarlega vandamálið sem komið hefur upp var þegar í ljós kom hve margir vildu leika Albert. En nú er búið að skera úr um hver fær að leika hann og hlutverkið æft á fullu þessa dagana. Hún sagði að það væri með eindæmum skemmtilegt fólk í nefndinni og allir til í að taka þátt og því allir með hlutverk. Aðspurð sagðist hún ekkert geta sagt um þema eða áherslur á blótinu þar sem samkvæmt venju væri það leyndarmál.
Meðfylgjandi þessari frétt er mynd sem var tekin þegar áheyrnarprófið fyrir Albert bæjarstjóra fór fram. Ekki er hægt að geta þess hver tók myndina sem var laumað til okkar á vefnum því það mun vera stranglega bannað að birta myndir frá æfingum fyrir blótið.





Skrifa athugasemd