Janúar
Rannveig Einarsdóttir
Rannveig Einarsdóttir
Rannveig Einarsdóttir mun taka að sér leiðbeinandahlutverk á námskeiðinu.
Mynd 2 af 2
1 2

18.01.2006 Janúar

Magnús og Rannveig selja Blómaland

Magnús Jónasson og Rannveig Einarsdóttir sem hafa rekið Blómaland ehf í rúm 25 ár hafa nú selt fyrirtækið og rekstur þess. Nýir kaupendur eru Rósaberg ehf og hafa þeir formlega tekið við fyrirtækinu. Bómaland var stofnað í maí 1980 og er eitt af rótgrónu fyrirtækjunum í sveitarfélaginu. Upphaflegur rekstur þess var Blómaverslun og skrúðgarðaþjónusta og var fyrirtækið til húsa að Vesturbraut 11, það var reksturinn fluttur í bílskúr á Smárabraut 14 síðan flutti fyrirtækið í eigin húsnæði að Víkurbraut 4 sem það byggði ásamt öðrum. Á Víkurbraut 4 var bólmarverslun og skrúðgarðaþjónusta en hellusteypan hefur verið starfrækt við Álaugarveg 5 frá 1988. Blómaland seldi rekstur blómaverslunarinnar árið 2001 til Bláablómsins sem nú starfar í Miðbæ.

Og hvað ætlar Magnús síðan að gera eftir söluna,, aðspurður sagðist hann ætla að vaka klukka 7 á morgnana, eyða smá stund með sjálfum sér og fara aftur að sofa eins og Lýður lottóvinningshafi orðaði það.. en öllu gríni leptu þá sagði Magnús að framtíðin væri óráðin, það yrði bara að koma í ljós hver hún yrði...

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica