Janúar
Nýheimar
Nýheimar

18.01.2006 Janúar

Starf forstöðumanns Háskólasetursins laust til umsóknar.

Háskólasetrið á Hornafirði er rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Suðausturlandi. Háskólasetrið hefur starfað í tæp fögur ár og rekstur þess hefur grundvallast á samstarfssamningi milli Háskóla Íslands, Vegagerðarinnar, Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Landsvirkjunar, Siglingastofnunar og Veðurstofunnar. Meginmarkmið Háskólasetursins á Hornafirði er að efla rannsóknir og þekkingartengda starfsemi á Suðausturlandi. Frá upphafi hefur Háskólasetrið einbeitt sér að því að koma á fót samvinnu um rannsóknaverkefni við ýmsar stofnanir og aðila, bæði innlenda og erlenda. Áhersla hefur verið lögð á þverfaglegar umhverfisrannsóknir og þróun rannsókna á sviði ferðamála.

Auk þess að stunda rannsóknir á framangreindum sviðum eða öðrum sviðum náttúruvísinda og hafa yfirumsjón með samstarfsverkefnum sem setrið tekur þátt í, hefur forstöðumaður Háskólasetursins umsjón með daglegum rekstri setursins, annast áætlanagerð, hefur yfirumsjón með fjáröflun og samræmir fjáröflunarleiðir. Forstöðumaðurinn ber að þessu leyti ábyrgð gagnvart stjórn setursins og situr stjórnarfundi með tillögurétt en án atkvæðisréttar.

Umsækjendur skulu hið minnsta hafa lokið meistaraprófi frá viðurkenndum háskóla eða jafngildi þess. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi stundað sjálfstæðar rannsóknir og hafi jafnframt reynslu af stjórnunar- og skipulagsvinnu. Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, gott vald á ensku og íslensku og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla af alþjóðasamskiptum er æskileg.

Forstöðumaður er starfsmaður Háskóla Íslands og mun hafa starfsaðstöðu á Hornafirði. Um fullt starf er að ræða.

Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, auk meðmæla sendist til Starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Umsókn þarf jafnframt að fylgja greinargóð skýrsla um vísindastörf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá), ásamt greinargerð um þær áherslur sem umsækjandi hyggst leggja í starfi forstöðumanns verði hann ráðinn. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum greint frá ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknafrestur er til 27. janúar 2006. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar Fræðasetra Háskóla Íslands í síma 5254929, rol@hi.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica