Janúar
Trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli
Trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli
Trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli
Mynd 1 af 2
1 2

12.01.2006 Janúar

Trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli

Núna stendur yfir trúnaðarmannanámskeið hjá Vökli stéttarfélagi á Höfn. Þátttakendur eru 11 af öllu félagssvæði Vökuls. Á námskeiðinu sem er haldið í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu, verður farið yfir ýmis mál sem snúa að starfi trúnaðarmanna, s.s umkvartanir og skipulögð vinnubrögð, launaseðla og launaútreikning, tryggingar og launafólk. Einn dagur er helgaður efni frá Vinnueftirlitinu, farið yfir öryggismál og einnig verður hagfræðingur með tryggingamál launafólks. Fleiri námskeið verða á næstunni t.d. byrjar viku námskeið fyrir fiskvinnslufólk næsta mánudag og eru komnir 18-20 þátttakendur á það.

Fiskvinnslufólk sem sækir svona námskeið á rétt á tveggja launaflokka hækkun og er á launum hjá sínum atvinnurekanda meðan verið er á námskeiðinu. Fiskvinnslufólk á rétt á slíkum námskeiðum sem þessu þegar það hefur unnið við fiskverkun í ákveðinn tíma.
Fleiri námskeið eru fyrirhuguð á vegum Vökuls í vetur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica