Janúar
Prjonaskapur
Prjonaskapur
(úr myndasafni Handraðinn) Lopapeysur eru mikil prýði.

11.01.2006 Janúar

Þótti sjálfsagt að allir kynnu að prjóna

Hver vill ekki læra að prjóna? Hér áður fyrr þótti það sjálfsagt að hver stúlka lærði að prjóna og ekki bara stúlkur heldur karlmenn líka. Í grunnskólanum er verið að kenna krökkum að prjóna enda prjónaskapur mjög vinsæll í dag. Nú gefst þeim sem vilja kostur á að fara á prjónanámskeið sem stefnt er að halda hér á Höfn á næstunni. Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Á byrjendanámskeiðinu er kennt frá grunni en á námskeiðinu fyrir þá sem eru lengra komnir verður kennt að prjóna og lesa uppskrift, prjóna dúk, peysu, vesti, fingravettlinga og ýmislegt fleira. Kennari á námskeiðinu er Ragnheiður Jóhannsdóttir sem er handmenntakennari að mennt.

Að sögn Guðnýjar Svavarsdóttur sem sér um að skipuleggja námskeiðið er prjónaskapur afslappandi og góður fyrir alla svo ekki sé minnst á hversu skapandi hann er. Hún á von á því að þátttakan verði góð enda mikið handverksfólk í Sveitafélaginu. Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu geta haft samband í síma 869 9913 eftir kl 17:00 á daginn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica